Jón Helgason. Höfuðlausnarhjal

From WikiSaga
Jump to navigationJump to search
  • Author: Jón Helgason
  • Title: Höfuðlausnarhjal
  • Published in: Einarsbók. Afmæliskveðja til Einars Ól. Sveinssonar. 12. desember 1969
  • Editors: Bjarni Guðnason, Halldór Halldórsson, Jónas Kristjánsson
  • Place, Publisher: Reykjavík: Nokkrir vinir
  • Year: 1969
  • Pages: 156-76
  • E-text:
  • Reference: Jón Helgason. "Höfuðlausnarhjal." Einarsbók. Afmæliskveðja til Einars Ól. Sveinssonar. 12. desember 1969, pp. 156–76. Eds. Bjarni Guðnason, Halldór Halldórsson, Jónas Kristjánsson. Reykjavík: Nokkrir vinir, 1969.

  • Key words: language and style, poetry, authorship, date, intertextuality (mál og stíll, kveðskapur, höfundur, aldur, textatengsl)


Annotation

Lýsing

Jón Helgason efast um sannleiksgildi frásagnarinnar af Jórvíkurför Egils, einkum að Egill hafi sjálfur ort Höfuðlausn. Í raun telur Jón fæst af kveðskap Egils vera eftir hann sjálfan, nema helst Arinbjarnarkviða og Sonatorrek. Margt hafi getað skolast til á þeim þrem öldum sem liðu frá því að Egill var uppi og þar til sagan var skrifuð. Það sést m.a. á ýmsum hljóð- og málbreytingum sem séu of unglegar til að þær hafi getað staðið saman í hendingum. Höfuðástæða þess að Jón telur að Höfuðlausn sé ekki eftir Egil er að þar eru /ƒ/ og /ø/ látin ríma saman. Jafnframt telur hann kvæðið vera stælingu á Geisla Einars Skúlasonar sem var uppi tveimur öldum á eftir Agli en ekki á hinn veginn, eins og flestir hafa talið. Ef Arinbjarnarkviða er eftir Egil mætti gera ráð fyrir að Egill hafi í raun siglt til Jórvíkur en Jón telur að kvæðið segi öðruvísi frá atburðunum í Jórvík en sagan sjálf. Það hafi hugsanlega verið ort á síðari hluta 12. aldar af sagnamanni sem hafi fundist það vanta inn í frásagnir af Jórvíkurferð Egils. Þegar sagan var skrifuð á 13. öld hafi kvæðið ekki verið tekið með, en því bætt við í seinni gerðum.

See also

References

Links

  • Written by: Álfdís Þorleifsdóttir
  • English translation: