Jón Hnefill Aðalsteinsson. Trúarhugmyndir í Sonatorreki

From WikiSaga
Revision as of 08:59, 18 May 2016 by Barbora (talk | contribs)
Jump to navigationJump to search
  • Author: Jón Hnefill Aðalsteinsson
  • Title: Trúarhugmyndir í Sonatorreki.
  • Published in: Studia Islandica 57
  • Place, Publisher: Reykjavík : Bókmenntafræðistofnun Háskóla Íslands : Háskólaútgáfan
  • Year: 2001
  • E-text:
  • Reference: Jón Hnefill Aðalsteinsson. Trúarhugmyndir í Sonatorreki. Studia Islandica 57. Reykjavík : Bókmenntafræðistofnun Háskóla Íslands : Háskólaútgáfan, 2001.

  • Key words: poetry, religion, authorship, date (kveðskapur, trúarbrögð, höfundur, aldur)


Annotation

Lýsing

Kvæðið Sonatorrek er skoðað í ljósi hugmyndafræði. Leiðsögutilgáta Jóns Hnefils er að kvæðið endurspegli fornnorrænan hugmyndaheim og trúarbrögð 10. aldar. Honum virðist ekkert vera því til fyrirstöðu að ætla að Egill sé höfundur kvæðisins og það sé ort um 960. Heimsmynd kvæðisins komi heim og saman við þá heimsmynd sem dregin sé upp í öðrum fornnorrænum bókmenntum, fyrir utan það að hlutur Ægis og Ránar sé meiri í kvæðinu en almennt gerist og telur Jón Hnefill styrkja þá kenningu að kvæðið sé ort á heiðnum tíma. Hann telur að góð varðveisla kvæðisins bendi til þess að það hafi geymst á rúnaletri uns það var skráð í glötuðu forriti Ketilsbókar. Vísar hann í því sambandi til frásagnar sögunnar á því þegar Þorgerður dóttir Egils hafi boðist til að „rista það á kefli“.

See also

References

Links

  • Written by: Álfdís Þorleifsdóttir
  • English translation: