Jón Jónsson. Eiríkr blóðöx í Jórvík

From WikiSaga
Revision as of 13:31, 9 January 2015 by Salta (talk | contribs)
Jump to navigationJump to search
  • Author: Jón Jónsson
  • Title: Eiríkr blóðöx í Jórvík
  • Published in: Arkiv för nordisk filologi 33
  • Place, Publisher:
  • Year: 1917
  • Pages: 314-19
  • E-text:
  • Reference: Jón Jónsson. "Eiríkr blóðöx í Jórvík." Arkiv för nordisk filologi 33 (1917): 314–19.

  • Key words: history, chronology (sagnfræði, tímatal)


Annotation

Lýsing

Í greininni rannsakar höfundur ýmsar heimildir þar sem er fjallað um Eirík blóðöx. Hann ber þær saman og spyr hvort Eiríkr hafi ríkt á Norðimbralandi á dögum Aðalsteins Englakonungs. Svo er sagt í Egils sögu og Heimskringlu en á móti því mæla sumar aðrar sögulegar heimildir. Í enskum árbókum er til dæmis sagt að Eiríkur hafi verið konungur í Jórvík á dögum Játmundar 1. Höfundurinn bendir aftur á móti á að ævisaga Cadroë hins helga, sem prentuð hafi verið í safni W.F. Skene til sögu Skotlands, samræmist þeim vitnisburði íslensku heimildanna að Eirikr blóðöx hafi haft ríki á Norðimbralandi á dögum Aðalsteins Englakonungs, þó að hún lýsi því á ólíkan hátt.

See also

References

Chapter 69: bróðir hans Játmundur: "Þó mælir margt á móti því, að Eiríkr hafi verið í Jórvík um daga Játmundar, er átti viðskifti við aðra konunga þar nyrðra, enda segja sögurnar einum rómi, að Aðalsteinn hafi veitt Eiríki yfirsókn á Norðimbralandi, og er það sögn Eg. og Hkr., að Eiríkr hafi verið settur þar til landvarnar, en haldist þar eigi við eftir að Játmundr kom til ríkis" (pp. 316-17).

Links

  • Written by: Agnieszka Bikowska
  • English translation: