Njála, 067

From WikiSaga
Revision as of 15:11, 24 June 2014 by Olga (talk | contribs) (Created page with "{{Njála_TOC}} ==Chapter 67== '''TITLE.''' ENSKA ==References== <references /> ==Kafli 67== Nú er að segja frá Þorgeiri Otkelssyni. Hann gerðist maður mikill og sty...")
(diff) ← Older revision | Latest revision (diff) | Newer revision → (diff)
Jump to navigationJump to search


Chapter 67

TITLE.

ENSKA

References


Kafli 67

Nú er að segja frá Þorgeiri Otkelssyni. Hann gerðist maður mikill og styrkur, trúlyndur og óslægur, nokkuð talhlýðinn. Hann var vinsæll af hinum bestum mönnum og ástsæll af frændum sínum.

Einhverju sinni hefir Þorgeir Starkaðarson farið að finna Mörð frænda sinn.

„Illa uni eg við,“ segir hann, „málalok þau sem orðið hafa með oss Gunnari en eg hefi keypt að þér liðveislu meðan við værum uppi báðir. Vil eg að þú hugsir nokkura ráðagerð og leggist djúpt. Mæli eg því þetta svo ljóst að eg veit að þú ert hinn mesti óvinur Gunnars og svo hann þinn. Skal eg auka mikið þína sæmd ef þú sérð vel fyrir.“

„Sýnist það jafnan,“ segir Mörður, „að eg er fégjarn enda mun svo enn. Og er vant fyrir að sjá að þú sért eigi griðníðingur en þú komir þó þínu máli fram. En það er mér sagt að Kolskeggur ætli mál fram að hafa og rifta fjórðung í Móeiðarhvoli] er föður þínum var goldið í sonarbætur. Hefir hann mál þetta tekið af móður sinni og er þetta ráð Gunnars að gjalda lausafé en láta eigi landið. Skal þess að bíða er þetta gengur fram og kalla hann þá rjúfa sætt á yður. Hann hefir og tekið sáðland af Þorgeiri Otkelssyni og rofið svo sætt á honum. Skalt þú fara að finna Þorgeir Otkelsson og koma honum í málið með þér og fara að Gunnari. En þótt í bresti nokkuð um þetta og fáið þér hann eigi veiddan þá skuluð þér þó fara að honum oftar. Mun eg segja þér að Njáll hefir spáð honum og sagt fyrir um ævi hans, ef hann vægi í hinn sama knérunn oftar en um sinn að það mundi honum bráðast til bana, bæri það þá svo við að hann ryfi sætt þá er ger væri. Skalt þú því koma Þorgeiri í málið að hann hefir vegið föður hans áður og ef þið eruð á einum fundi þá skalt þú hlífa þér en hann mun ganga fram vel og mun Gunnar vega hann. Hefir hann þá vegið tvisvar í hinn sama knérunn en þú skalt flýja af fundinum. En ef honum vill þetta til dauða draga þá mun hann rjúfa sættina. Er þar til að sitja.“

Eftir þetta fer Þorgeir heim og segir föður sínum af hljóði. Réðu þeir það með sér að með þessa ráðagerð skyldu þeir af hljóði fara.


Tilvísanir

Links