Njála, 110

From WikiSaga
Revision as of 08:17, 25 June 2014 by Olga (talk | contribs)
Jump to navigationJump to search


Chapter 110

TITLE.

ENSKA

References


Kafli 110

Það var einn dag að Mörður kom til Bergþórshvols. Þeir gengu þegar á tal, Njálssynir og Kári. Mörður rægir Höskuld að vanda sínum og hefir nú enn margar nýjar sögur og eggjar einart Skarphéðin og þá að drepa Höskuld og kvað hann mundu verða skjótari ef þeir færu eigi þegar að honum.

„Gera skal þér kost á þessu,“ segir Skarphéðinn, „ef þú vilt fara með oss og gera að nokkuð.“

„Það vil eg til vinna,“ segir Mörður. Og bundu þeir það með fastmælum og skyldi hann þar koma um kveldið.

Bergþóra spurði Njál: „Hvað tala þeir úti?“

„Ekki er eg í ráðagerð með þeim,“ segir Njáll. „Sjaldan var eg þá frá kvaddur er hin góðu voru ráðin.“

Skarphéðinn lagðist ekki niður um kveldið og ekki bræður hans né Kári. Þessa nótt hina sömu kom Mörður Valgarðsson og tóku þeir vopn sín Njálssynir og Kári og riðu í braut.

Þeir fóru þar til er þeir komu í Ossabæ og biðu þar hjá garði nokkurum. Veður var gott og sól upp komin.


Tilvísanir

Links