Njála, 135

From WikiSaga
Revision as of 08:23, 25 June 2014 by Olga (talk | contribs)
Jump to navigationJump to search


Chapter 135

TITLE.

ENSKA

References


Kafli 135

Þórhallur Ásgrímsson og Kári Sölmundarson riðu einnhvern dag til Mosfells að finna Gissur hvíta. Hann tók við þeim báðum höndum og voru þeir þar mjög langa hríð.

Það var einu hverju sinni þá er þeir Gissur töluðu um brennu Njáls að Gissur kvað það allmikla giftu er Kári hafði í braut komist.

Þá varð Kára vísa á munni:


42. Hjálmskassa fór hvessir,

herðimeiðs, af reiði

út úr elris sveita

ófús Níals húsa

þá er eld-Gunnar inni

oddrunnar þar brunnu.

Menn nemi mál sem eg inni

mín, harmsakir tíni.


Þá mælti Gissur: „Vorkunn er það er þér sé minnisamt og skal eg nú gera mér dælt um ráðagerð við þig. Þú skalt eigi heim ríða en þó skaltu í braut ríða og austur undir Eyjafjöll að finna Þorgeir skorargeir og Þorleif krák. Þeir skulu ríða austan með þér. Þeir eru aðilar sakanna. Með þeim skal ríða Þorgrímur hinn mikli bróðir þeirra. Þeir skulu ríða til Marðar Valgarðssonar og segja honum orð mín til að hann taki við vígsmáli eftir Helga Njálsson á hendur Flosa. En ef hann mælir nokkuru orði í móti þessu þá skaltu gera þig sem reiðastan og láta sem þú munir hafa öxi í höfði honum. Þú skalt og í annan stað segja á reiði mína ef hann lætur illa að komast. Þar með skaltu segja að eg mun láta sækja Þorkötlu dóttur mína og láta hana fara heim til mín en það mun hann eigi þola því að hann ann henni sem augum í höfði sér.“

Kári þakkaði honum sína ráðagerð. Ekki samdi Kári um liðveislu við hann því að hann ætlaði þá að honum mundi það fara vinveitlega sem annað.

Kári reið þaðan austur yfir ár og þangað til Fljótshlíðar og austur yfir Markarfljót og svo til Seljalandsmúla. Þeir ríða austur í Holt. Þorgeir tók við þeim með hinni mestu blíðu. Hann sagði þeim um ferðir Flosa og hversu mikið lið hann hafði þegið í Austfjörðum. Kári sagði að það væri vorkunn að hann bæði sér liðs svo mörgum sem hann mundi svara eiga.

Þorgeir mælti: „Því betur er þeim fer öllum verr að.“

Kári segir Þorgeiri tillögur Gissurar.

Síðan ríða þeir austan á Rangárvöllu til Marðar Valgarðssonar. Hann tók vel við þeim. Kári sagði honum orðsending Gissurar mágs hans. Hann tók seinlega undir það og kvað meira að sækja Flosa einn en tíu aðra.

Kári mælti: „Þetta fer þér sem hann ætlaði því að þér eru allir hlutir illa gefnir. Því að þú ert bæði hræddur og huglaus enda skal það á bak koma sem þér er maklegt að Þorkatla skal fara heim til föður síns.“

Hún bjóst þegar og kvaðst þess fyrir löngu búin að skildi með þeim Merði. Hann skipti þá skjótt skapi sínu og svo orðum og bað af sér reiði og tók þegar við málinu.

Kári mælti: „Nú hefir þú tekið við málinu og sæk nú óhræddur því að líf þitt liggur við.“

Mörður kvaðst allan hug skyldu að leggja að gera þetta vel og drengilega.

Eftir það stefndi Mörður til sín níu búum. Þeir voru allir vettvangsbúar.

Mörður tók þá í hönd Þorgeiri og nefndi votta tvo „í það vætti að Þorgeir Þórisson selur mér vígsök á hendur Flosa Þórðarsyni að sækja um víg Helga Njálssonar með sóknargögnum þeim öllum er sökinni eiga að fylgja. Selur þú mér sök þessa að sækja og að sættast á, svo allra gagna að njóta sem eg sé réttur aðili. Selur þú mér að lögum en eg tek með lögum.“

Í annað sinn nefndi Mörður sér votta „í það vætti,“ segir hann, „að eg lýsi lögmætu frumhlaupi á hönd Flosa Þórðarsyni er hann veitti Helga Njálssyni heilundarsár eða holundar eða mergundar það er að ben gerðist en Helgi fékk bana af. Lýsi eg fyrir búum fimm“ – og nefndi hann þá alla – „lýsi eg löglýsing. Lýsi eg handseldri sök Þorgeirs Þórissonar.“

Í öðru sinni nefndi hann votta „í það vætti að eg lýsi heilundarsári eða holundar eða mergundar á hönd Flosa Þórðarsyni, því sári er að ben gerðist en Helgi fékk bana af á því vættfangi er Flosi Þórðarson hljóp til Helga Njálssonar lögmætu frumhlaupi áður. Lýsi eg fyrir búum fimm“ – síðan nefndi hann þá alla – „lýsi eg löglýsing. Lýsi eg handseldri sök Þorgeirs Þórissonar.“

Þá nefndi Mörður sér votta „í það vætti,“ segir hann, „að eg kveð vettvangsbúa þessa alla níu“ – og nefndi þá alla á nafn – „og alþingisreiðar og búakviðar að bera um það hvort Flosi Þórðarson hljóp lögmætu frumhlaupi til Helga Njálssonar á því vættfangi er Flosi Þórðarson veitti Helga Njálssyni heilundarsár eða holundarsár eða mergundar það er að ben gerðist en Helgi fékk bana af. Kveð eg yður þeirra orða allra er yður skylda lög til um að bera og eg vil yður að dómi beitt hafa og þessu máli eiga að fylgja. Kveð eg yður lögkvöð svo að þér heyrið á allir. Kveð eg um handselt mál Þorgeirs Þórissonar.“

Mörður nefndi sér votta „í það vætti að eg kveð búa þessa níu alþingisreiðar og búakviðar að bera um það hvort Flosi Þórðarson særði Helga Njálsson heilundarsári eða mergundar eða holundar, því er ben gerðist en Helgi fékk bana af á því vættfangi er Flosi Þórðarson hljóp að Helga Njálssyni lögmætu frumhlaupi áður. Kveð eg yður þeirra orða allra er yður skylda lög til um að bera og eg vil yður að dómi beitt hafa og þessu máli eiga að fylgja. Kveð eg yður lögkvöð. Kveð eg yður svo að þér heyrið á sjálfir. Kveð eg yður um handselt mál Þorgeirs Þórissonar.“

Þá mælti Mörður: „Nú er mál til búið sem þér beiddust. Vil eg nú biðja þig, Þorgeir skorargeir, að þú komir til mín er þú ríður til þings og ríðum við þá báðir saman með hvorntveggja flokkinn og höldum okkur sem best saman því að flokkur minn skal þegar búinn til öndverðs þings og skal eg yður í öllum hlutum trúr vera.“

Þeir tóku því öllu vel og var þetta bundið svardögum að engi skyldi við annan skilja fyrr en Kári vildi og hver þeirra skyldi leggja sitt líf við annars líf. Skildu þeir nú með vináttu og mæltu mót með sér á þingi.

Ríður nú Þorgeir austur aftur en Kári ríður vestur yfir ár þar til er hann kom í Tungu til Ásgríms. Hann tók við þeim ágæta vel. Kári sagði Ásgrími alla ráðagerð Gissurar hvíta og málatilbúnaðinn.

„Slíks var mér að honum von,“ segir Ásgrímur, „að honum mundi vel fara enda hefir hann það nú sýnt.“

Ásgrímur mælti: „Hvað spyrðu austan frá Flosa?“

Kári svarar: „Hann fór allt austur í Vopnafjörð og hafa nálega allir höfðingjar heitið honum sinni liðveislu og alþingisreið. Þeir væntu sér og liðs af Reykdælum og Ljósvetningum og Eyfirðingum.“

Þeir töluðu þar margt um. Líða nú stundir allt framan til alþingis.

Þórhallur Ásgrímsson tók fótarmein svo mikið að fóturinn fyrir ofan ökkla var svo digur og þrútinn sem konulær og mátti hann ekki ganga nema við staf. Hann var mikill maður vexti og rammur að afli, dökkur á hárslit og skinnslit, vel orðstilltur og þó skapbráður. Hann var hinn þriðji mestur lögmaður á Íslandi.

Nú kemur að því sem menn skyldu fara heiman til þings.

Ásgrímur mælti til Kára: „Þú skalt ríða til öndverðs þings og tjalda búðir vorar og með þér Þórhallur son minn. Þú munt best og hóglegast með hann fara er hann er fótlami en vér munum hans mest þurfa á þessu þingi. Með ykkur skulu ríða tuttugu menn aðrir.“

Eftir það var búin ferð þeirra og riðu þeir síðan til þings og tjölduðu búðir og bjuggust vel um.


Tilvísanir

Links