Talk:Gjessing, G. A.. Undersøgelse af Kongesagaens fremvæxt

From WikiSaga
Jump to navigationJump to search
  • Höfundur: Sigrún Davíðsdóttir
  • Titill: Samhengi hlutanna
  • Útgáfustaður: Akranes
  • Útgefandi: Uppheimar
  • Útgáfuár: 2011
  • Tilvísun: Sigrún Davíðsdóttir. Samhengi hlutanna. [Akranes]: Uppheimar, 2011.



Efnislýsing

Í upphafi sögunnar kynnist lesandi Huldu, blaðakonu búsettri í London sem er (rétt eins og Sigrún Davíðsdóttir) þekkt fyrir gagnrýna útvarpspistla um íslensku útrásarvíkingana en lætur óvænt lífið í umferðarslysi haustið 2009. Æskuvinur hennar, sem er reyndur blaðamaður, og eftirlifandi unnusti taka sér fyrir að hendur að halda áfram rannsóknum Huldu og púsla saman drögum að bók sem hún var með í smíðum þegar hún lést. Þegar á verkið líður verður ljóst að rannsókn þeirra snýst ekki bara um hæpna viðskiptahætti heldur einnig blóðugan glæp.

Veruleikalíking

Í ágætum ritdómi um bókina, sem birtist í Víðsjá á Rás eitt 16. nóvember, segir Björn Þór Vilhjálmsson „að hrunið sé tekið svo bókstaflegum tökum í verkinu að lesanda finnist á stundum sem andrúmsloft skáldleysunnar svífi yfir vötnum“. Hugtakið listræn skáldleysa hefur í grein eftir Rúnar Helga Vignisson verið notað sem þýðing á enska hugtakinu „creative non-fiction“ en það virðist nær lagi að kalla Samhengi hlutanna lykilsögu (fr. roman à clef). Hér er meðal annars fjallað um fjármálastofnanirnar HK banka, Eyjabanka og Sleipni, sem virðast vera lítt dulbúnar hliðstæður KB banka, Landsbanka og Glitnis. Þarna er líka rætt um fyrirtæki sem heita Hringur og Delilah og minna að einhverju leyti á Baug og Samson.

Gagnrýni

Sem spennusaga fer frásögnin fremur hægt af stað en fyrir þá sem hafa áhuga og almenna þekkingu á sviptingum í íslensku viðskiptalífi á undanförnum árum vegur á móti kitlandi forvitni um hve nærri veruleikanum höfundurinn fer í skrifum sínum.

Það er forvitnilegt að velta fyrir sér hvers vegna Sigrún velur sér form skáldsögunnar til tjáningar. Hugsanlega hefur hún viljað ná í einum heildstæðum texta utan um þann flókna og viðamikla veruleika sem hún hefur verið að fjalla um í fjölmörgum stuttum fréttapistlum á undanförnum árum. Sagan er að sínu leyti metnaðarfull tilraun til að setja fjöldamörg staðreyndabrot í samhengi, eins og titillinn vitnar um. Jafnframt kann Sigrún að hafa viljað ná til þess stóra lesendahóps sem nennir kannski ekki að lesa öll níu bindin í Rannsóknarskýrslu Alþingis en kann hins vegar að meta vel ofnar spennusögur. Eins og Björn Þór nefnir í dómi sínum má finna vissar samsvaranir milli Samhengis hlutanna og skáldsagna hins vinsæla sænska spennusagnahöfundar Stiegs Larsson, en meðal þess sem hann varpar forvitnilegu ljósi á í verkum sínum eru hvítflibbaglæpir og siðlaust samkrull pólitíkur og viðskiptalífs.

Í öðru lagi gefur skáldsagnaformið Sigrúnu tækifæri til að draga ákveðnar ályktanir af hruninu, segja tilteknar dæmisögur og setja fram vissar tilgátur um starfsemi íslensku bankanna sem hún getur af einni eða annarri ástæðu ekki tjáð öðruvísi. Hana kann sem blaðamaður að skorta nógu traustar sannanir til að fullyrða um einstaka hluti, svo sem um mögulegan peningaþvott í íslensku bönkunum, en telji engu að síður brýnt að sá möguleiki sé tekinn til alvarlegrar athugunar. Það má líka hugsa sér að hún velji skáldsagnaformið til að forðast möguleg málaferli. Hér má minna á að á liðnum vetri kærði Björgólfur Thor Björgólfsson Sigrúnu fyrir siðanefnd Blaðamannafélagsins vegna umfjöllunar hennar um aflandsfélög Landsbankans (sjá niðurstöðu siðanefndarinnar). Nú síðast í september birtist grein á vef Guardian eftir hana og Simon Bower undir fyrirsögninni „Icelandic tycoon still living the high life in London after the collapse of Icesave“, sem lögmenn Björgólfs Thors gerðu athugasemd við. Sem skáldsagnahöfundur getur Sigrún tekið sér margháttuð skáldaleyfi (kannski er viðeigandi að tala um skáldaskjól í þessu sambandi?) án þess þurfa að standa skil á texta sínum frammi fyrir dómstólum. Reyndar hafa höfundar annars konar bóka einnig vissar leiðir til að koma sér í skáldaskjól; þannig má geta þess að á einum stað í Þráðum valdsins lýsir Jóhann Hauksson aðstöðubraski með forvitnilegri dæmisögu af Jóni Jónssyni, stjórnarmanni í eignarhaldsfélaginu Féþúfu, sem kaupir hlut í fjármálafyrirtækinu Fjárplógi (s. 58-59).

Síðast en ekki síst er skáldsagnaformið, ólíkt formi fræðiritgerðarinnar og fjölmiðlapistilsins, margradda; vettvangur þar sem hægt er að leiða margar og ólíkar skoðanir á tilteknu viðfangsefni fram og láta lesandanum eftir að taka endanlega afstöðu til þeirra. Ef höfundur nýtir sér ekki þetta svigrúm og lítur einungis á persónur sem búktalaradúkkur sinna eigin viðhorfa vakna upp efasemdir um val hans á skáldsagnaforminu. Hugsanlega er það þetta atriði sem öðru fremur veldur óþoli Árna Matthíassonar gagnvart nýjum hrunbókum; að minnsta kosti er unnt að túlka umræðu hans um predikunaráráttu eldri höfunda í þessu ljósi. Sjálfum þykir mér einn af mörgum kostum við verk Sigrúnar að þar stígur fjölbreyttur hópur persóna fram og þó að unnt sé, líkt og Björn Þór gerir, að líta á þær sem „málpípur ákveðinna viðhorfa um hrunið, orsakir þess og afleiðingar“ þá er þær að mínu viti nægjanlega margar, fjölbreyttar og trúverðugar til að engin þeirra verði óvéfengjanleg málpípa höfundarins og viðhorfa hans. Lesandanum er blessunarlega treyst til að vega og meta frásagnir þeirra og komast að sínum eigin niðurstöðum um samhengi valdsins.

Önnur umfjöllun

  • Ingi Þór Kormáksson. "Peningaþvottavélin Ísland". Bókmenntir.is, nóvember 2011.


  • Höfundur færslu: Jón Karl Helgason


Bókmenntagrein:Glæpasaga