Grimstad, Kaaren. The Giant as a Heroic Model
- Author: Grimstad, Kaaren
- Title: The Giant as a Heroic Model. The case of Egill and Starkarður
- Published in: Scandinavian Studies 48
- Place, Publisher: n/a
- Year: 1976
- Pages: 284–98
- E-text:
- Reference: Grimstad, Kaaren. "The Giant as a Heroic Model. The case of Egill and Starkarður." Scandinavian Studies 48 (1976): 284–98.
- Key words:
Annotation
Lýsing
Grimstad ber Starkað, eins og hann birtist í Gautreks sögu og Gesta Danorum Saxa málspaka, saman við Egil Skalla-Grímsson og segir persónusköpun þeirra beggja tilheyra sama bókmenntaminni. Hún segir Starkað og Egil báða búa yfir ýmsum eiginleikum trölla og fer yfir hverjir þessir eiginleikar eru. Starkaður er afkomandi trölla en föðurfjölskylda Egils hefur ýmsa yfirnáttúrulega eiginleika; bróðir langömmu Egill var kallaður hálftröll, afi hans er hamrammur, föður hans er líkt við þurs og sagður fullur úlfúðar og Agli er sjálfum líkt við tröll. Þótt engar beinar vísanir séu til yfirnáttúrulega hæfileika Egils í sögunni telur Grimstad að lýsingin á föðurfjölskyldu hans og hin mikla áhersla á tengsl hennar við ýmis yfirnáttúruleg fyrirbæri, sem og afrek Egils í lifanda lífi, sýni fram á að hann sé enginn venjulegur maður. Grimstad flokkar Starkað og Egil sem Óðinshetjur; báðir eru skáld, ýmislegt í fari þeirra tengir þá við risa eða tröll, þeir verða mjög gamlir og missa sjón, eru ljótir og enginn er þeirra jafningi í bardögum. Grimstad segir höfunda sagnanna vinna ólíkt með minnið; í frásögn Saxa er dregið úr tröllslegum einkennum Starkaðar og hann gerður mannlegri en öfugt er farið að við persónusköpun Egils og frekar aukið í en dregið úr tengslum hans við risa og tröll.
See also
References
Chapter 25: fullur upp úlfúðar: "The reader is made aware of the family resemblance to giants in Chapter 25. […] That Skalla-Grímur has inherited his father‘s theriomorphic tendencies is stressed by the king‘s comment about Grímr‘s "wolfishness"" (p. 286).
Links
- Written by: Védís Ragnheiðardóttir
- English translation: