Einar Ól. Sveinsson. Klýtæmestra og Hallgerður

From WikiSaga
Jump to navigationJump to search
  • Author: Einar Ólafur Sveinsson (1899-1984)
  • Title: Klýtæmestra og Hallgerður (greinin birt undir nafninu Tvær kvenlýsingar : Þættir um grískar og norrænar mannlýsingar í Helgafelli, tímariti um bókmenntir og önnur menningarmál)
  • Published in: Helgafell 2/1-3
  • Year: 1943
  • Pages: 16-31
  • E-text: timarit.is
  • Reference: Einar Ól. Sveinsson. 1943. Tvær kvenlýsingar : Þættir um grískar og norrænar mannlýsingar. Helgafell 2/1-3 (1943): 16-31.

  • Key words: characterisation, intertextuality (persónusköpun, textatengsl)


Annotation

Text missing


Lýsing

Í greininni ber höfundur einkum saman lýsingar á persónum Hallgerðar langbrókar í Njálu og Klýtæmestru (konu Agamemnons konungs) í grískum harmleik Æskhýlosar. Einnig minnist hann á persónur úr fleiri grískum leikritum og sögum, sem og Íslendingasögum, t.a.m. ræðir hann um mun á persónuleika Óðins og Seifs. Hann bendir á að margar persónur í báðum flokkum eigi í mikilli innri baráttu. Ekki sé ætlunin í grískum leikritum að skilja áhorfandann eftir í vafa um einhver atriði eða persónur. Persónur Íslendingasagna eigi hins vegar að vera margbreytilegar, með flóknu sálarlífi, en slíkar persónur hafi í raun ekki komið aftur fram fyrr en hjá Shakespeare og samtíðarmönnum hans.

See also

References

Chapter 9: örlynd og skaphörð: “Það er sama hvort byrjað er á óstillingu hennar eða harðlyndi eða blendni (svo farið sé sem næst lýsingarorðum sögunnar sjálfrar), hvergi getur að líta neinn miðdepil, sem allir eiginleikarnir greinast út frá.” (s. 16).


Chapter 77: hirði eg aldrei: “Þegar Hallgerður er að hefna kinnhests Gunnars, eru athafnir hennar mótaðar af afleiðingum hinna fyrri kinnhesta. Veit hún, að hún er þá um leið að hefna sín á Þorvaldi, fyrsta bónda sínum? Eða veit hún það ekki? Eða ríkir eitthvert hálfrökkur í vitund hennar?” (s. 18).

Links

  • Written by: Rut Ingólfsdóttir
  • English translation: