Bergljót Soffía Kristjánsdóttir. Primum caput: um höfuð Egils Skalla-Grímssonar

From WikiSaga
Revision as of 08:20, 30 November 2011 by Jón Karl Helgason (talk | contribs)
Jump to navigationJump to search
  • Author: Bergljót Soffía Kristjánsdóttir
  • Title: Primum caput: um höfuð Egils Skalla-Grímssonar, John frá Salisbury o.fl.
  • Published in: Skáldskaparmál 4
  • Place, Publisher: n/a
  • Year: 1997
  • Pages: 74-96
  • E-text:
  • Reference: Bergljót Soffía Kristjánsdóttir. "Primum caput: um höfuð Egils Skalla-Grímssonar, John frá Salisbury o.fl." Skáldskaparmál 4 (1997): 74-96.

  • Key words: poetry, philosophy, intertextuality (stjórnspeki, kveðskapur, heimspeki, textatengsl)


Annotation

Lýsing

„Höfuð“ er fyrirferðarmikið í Egils sögu og hér er það minni skoðað út frá hugmyndum 12. og 13. aldar manna. Hinn nýi samfélagsskilningur 12. aldar segir Bergljót að komi vel fram í Eglu og þar megi greina hugmyndatengsl við erlend verk, t.d. Policraticus eftir John frá Salisbury. Sagan færi sér þó einnig í nyt norræna sagna- og kvæðahefð, vísi m.a. í ragnarök þar sem úlfar gleypi sól og mána. Kveld-Úlfur og afkomendur hans sem standa uppi í hárinu á Noregskonungum séu í þeim skilningi nokkurs konar úlfar sem ógni konungdæminu. Höfuð þeirra feðga (skalli og hattur) koma mjög við sögu þegar þeir fara á konungsfund og virðist með orðaleikjum vísa á goðsöguna um Skoll og Hata. Vargsnáttúran býr í höfði ættarinnar og lýsir sér í árásargirnd þeirra, útliti og málsnilld sem beint er gegn konungnum sem þeir „gleypa“ í vissum skilningi. Þetta telur Bergljót að sé nátengt táknmáli sem þróist á svipuðum tíma í Evrópu og hún bendir á að í Arinbjarnarkviðu, sem beri þess merki að vera lært 13. aldarverk, sé mikil áhersla lögð á höfuð bæði Egils og konungs.

See also

References

Chapter 25: fullur upp úlfúðar: “Úlfsnáttúra Skalla-Grims er nú t.d. tengd höfði hans með samspili tvenndarinnar ‘skalli’ og ‘úlfúð’” (p. 76).

Chapter 61: Hatti: „Sem úlfsnafn merkir „Hatti“ líklega ‘sá höttótti’, en þegar það er fært yfir á ‘mann-úlf’ gefur það tilefni til merkingarinnar ‘maður með hatt eða hött’“ (p. 79).


Links

  • Written by: Álfdís Þorleifsdóttir
  • English translation: