Vésteinn Ólason. Er Snorri höfundur Egils sögu?

From WikiSaga
Jump to navigationJump to search
  • Author: Vésteinn Ólason
  • Title: Er Snorri höfundur Egils sögu?
  • Published in: Skírnir 142
  • Year: 1968
  • Pages: 48-67
  • E-text:
  • Reference: Vésteinn Ólason. "Er Snorri höfundur Egils sögu?" Skírnir 142 (1968): 48–67.

  • Key words: authorship, language and style (höfundur, mál og stíll)


Annotation

Text missing

Lýsing

Helstu röksemdir með og á móti því að Snorri sé höfundur Egils sögu eru dregnar saman. Vésteinn tekur ekki sjálfur afstöðu með eða á móti heldur rekur hann faðernismálið allt frá því Gruntvig setti fyrst fram þessa kenningu árið 1818 og allt fram á ritunartíma greinarinnar. Röksemdir með og á móti flokkar Vésteinn í þrjá flokka: sagnfræðilegar, bókmenntafræðilegar og mállegar röksemdir. Helstu sagnfræðilegu röksemdirnar sem styðja það að Snorri sé höfundur Eglu telur hann vera þrjár: (1) hversu vel landnámi Skalla-Gríms (ættföður Mýramanna) og Ketils hængs (ættföður Oddaverja) sé lýst; (2) staðþekkingin sem fram kemur í sögunni, bæði á Borgarfirði og Rangárþingi en jafnframt á Noregi; (3) frásagnirnar af ritstörfum hans. Bókmenntalegu röksemdirnar segir Vésteinn að megi m.a. finna í rittengslum sögunnar en þar beri fyrst að nefna Heimskringlu. Þó segir Vésteinn að það þurfi ekki að vera að höfundur að báðum verkum sé einn og sami maður. Einnig segir Vésteinn að röksemdanna hafi verið leitað í sameiginlegum listrænum einkennum með misjöfnum niðurstöðum en erfitt er að finna fasta viðmiðun um hvernig eigi að meta þau. Jafnframt hefur aldur sögunnar verið umfjöllunarefni þeirra fræðimanna sem fjallað hafa um höfund Egils sögu.


See also

References

Chapter 23: Hængur sigldi vestur í haf : „ Hið mikla rúm sem varið er til að skýra frá landnámi Ketils hængs er vandskýrt með öðru en sérstökum tengslum við Oddaverja. En þar fellur æviferill Snorra vel við. “ (s. 56)

Links

  • Written by: Álfdís Þorleifsdóttir
  • English translation: