Egla, 54: Difference between revisions

From WikiSaga
Jump to navigationJump to search
(Created page with "{{Egla_TOC}} ==Chapter 1== ==Kafli 1== <ref>REFERENCE TEXT(Fræðigrein:DISPLAY AS OTHER INFO)</ref> ==References== <references /> ==Links== [[Category:Eg...")
 
No edit summary
Line 3: Line 3:

==Chapter 1==
==Chapter 54==
 
==Kafli 54==
 
'''Fall Þórólfs'''
 
Aðalsteinn konungur hafði verið áður hina næstu nótt í borg þeirri er fyrr var frá sagt og þar spurði hann að bardagi hafði verið á heiðinni, bjóst þá þegar og allur herinn og sótti norður á heiðina, spurði þá öll tíðindi glögglega hvernig orusta sú hafði farið. Komu þá til fundar við konung þeir bræður Þórólfur og Egill. Þakkaði hann þeim vel framgöngu sína og sigur þann er þeir höfðu unnið, hét þeim vináttu sinni fullkominni. Dvöldust þeir þar allir samt um nóttina.
 
Aðalsteinn konungur vakti upp her sinn þegar um morguninn árdegis. Hann átti tal við höfðingja sína og sagði hver skipun vera skyldi fyrir liði hans. Skipaði hann fylking sína fyrst og þá setti hann í brjósti þeirrar fylkingar sveitir þær er snarpastar voru. Þá mælti hann að fyrir því liði skyldi vera Egill. „En Þórólfur,“ sagði hann, „skal vera með liði sínu og öðru því liði er eg set þar. Skal sú vera önnur fylking í liði voru er hann skal vera höfðingi fyrir því að Skotar eru jafnan lausir í fylkingu, hlaupa þeir til og frá og koma í ýmsum stöðum fram. Verða þeir oft skeinusamir ef menn varast eigi en eru lausir á velli ef við þeim er horft.“
 
Egill svaraði konungi: „Ekki vil eg að við Þórólfur skiljumst í orustu en vel þykir mér að okkur sé þar skipað er mest þykir þurfa og harðast er fyrir.“
 
Þórólfur mælti: „Látum við konung ráða hvað hann vill okkur skipa. Veitum honum svo að honum líki. Mun eg vera heldur ef þú vilt þar er þér er skipað.“
 
Egill segir: „Þér munuð nú ráða en þessa skiptis mun eg oft iðrast.“
 
Gengu menn þá í fylkingar svo sem konungur hafði skipað og voru sett upp merki. Stóð konungs fylking á víðlendið til árinnar en Þórólfs fylking fór hið efra með skóginum.
 
Ólafur konungur tók þá að fylkja liði sínu þá er hann sá að Aðalsteinn hafði fylkt. Hann gerði og tvær fylkingar og lét hann fara sitt merki og þá fylking er hann réð sjálfur fyrir móti Aðalsteini konungi og hans fylking. Höfðu þá hvorirtveggju her svo mikinn að engi var munur hvorir fjölmennri voru, en önnur fylking Ólafs konungs fór nær skóginum móti liði því er Þórólfur réð fyrir. Voru þar höfðingjar jarlar skoskir. Voru það Skotar flest og var það fjölmenni mikið.
 
Síðan gengust á fylkingar og varð þar brátt orusta mikil. Þórólfur sótti fram hart og lét bera merki sitt fram með skóginum og ætlaði þar svo fram að ganga að hann kæmi í opna skjöldu konungs fylkinginni. Höfðu þeir skjölduna fyrir sér en skógurinn var til hægra vegs. Létu þeir hann þar hlífa. Þórólfur gekk svo fram að fáir voru menn hans fyrir honum en þá er hann varði minnst þá hlaupa þar úr skóginum Aðils jarl og sveit sú er honum fylgdi, lögðu þegar mörgum kesjum senn á Þórólfi og féll hann þar við skóginn en Þorfinnur er merkið bar hopaði aftur þar er liðið stóð þykkra en Aðils sótti þá að þeim og var þar þá orusta mikil. Æptu Skotar þá siguróp er þeir höfðu felldan höfðingjann.
 
En er Egill heyrði óp það og sá að merki Þórólfs fór á hæl þá þóttist hann vita að Þórólfur mundi eigi sjálfur fylgja. Síðan hleypur hann til þangað fram í milli fylkinganna. Hann varð skjótt var þeirra tíðinda er þar voru orðin þegar hann fann sína menn. Hann eggjar þá liðið mjög til framgöngu. Var hann fremstur í brjóstinu. Hann hafði sverðið Naður í hendi. Hann sótti þá fram og hjó til beggja handa og felldi marga menn. Þorfinnur bar merkið þegar eftir honum en annað lið fylgdi merkinu. Var þar hin snarpasta orusta. Egill gekk fram til þess er hann mætti Aðisli jarli. Áttust þeir fá högg við áður Aðils jarl féll og margt manna um hann en eftir fall hans þá flýði lið það er honum hafði fylgt. En Egill og hans lið fylgdu þeim og drápu allt það er þeir náðu því að ekki þurfti þá griða að biðja. En jarlar þeir hinir skosku stóðu þá ekki lengi þegar er þeir sáu að aðrir flýðu þeirra félagar, tóku þegar á rás undan.
 
En þeir Egill stefndu þá þar til er var konungs fylkingin og komu þá í opna skjöldu og gerðu þar brátt mikið mannfall. Riðlaðist þá fylkingin og losnaði öll. Flýðu þá margir af Ólafs mönnum en víkingar æptu þá siguróp. En er Aðalsteinn konungur þóttist finna að rofna tók fylking Ólafs konungs þá eggjaði hann lið sitt og lét fram bera merki, gerði þá atgöngu harða svo að hrökk fyrir lið Ólafs og gerðist allmikið mannfall. Féll þar Ólafur konungur og mestur hluti liðs þess er Ólafur hafði haft því að þeir er á flótta snerust voru allir drepnir er náð varð. Fékk Aðalsteinn konungur þar allmikinn sigur.
 
==Kafli 1==

<ref>REFERENCE TEXT(Fræðigrein:[[PAGE NAME|DISPLAY AS]] OTHER INFO)</ref>

Revision as of 14:44, 8 November 2011

Chapter 54

Kafli 54

Fall Þórólfs

[1]

References

  1. REFERENCE TEXT(Fræðigrein:DISPLAY AS OTHER INFO)

Links