Egla, 55: Difference between revisions

From WikiSaga
Jump to navigationJump to search
(Created page with "{{Egla_TOC}} ==Chapter 1== ==Kafli 1== <ref>REFERENCE TEXT(Fræðigrein:DISPLAY AS OTHER INFO)</ref> ==References== <references /> ==Links== [[Category:Eg...")

No edit summary
Line 3: Line 3:

==Chapter 1==
==Chapter 55==

==Kafli 55==

'''Egill jarðaði Þórólf'''

Aðalsteinn konungur sneri í brott frá orustunni en menn hans ráku flóttann. Hann reið aftur til borgarinnar og tók eigi fyrr náttstað en í borginni en Egill rak flóttann og fylgdi þeim lengi og drap hvern mann er hann náði. Síðan sneri hann aftur með sveitunga sína og fór þar til er orustan hafði verið og hitti þar Þórólf bróður sinn látinn. Hann tók upp lík hans og þó, bjó um síðan sem siðvenja var til. Grófu þeir þar gröf og settu Þórólf þar í með vopnum sínum öllum og klæðum. Síðan spennti Egill gullhring á hvora hönd honum áður hann skildist við, hlóðu síðan að grjóti og jósu að moldu. Þá kvað Egill vísu:

Gekk, sá er óaðist ekki

jarlmanns bani snarla,

þreklundaðr féll, Þundar,

Þórólfr, í gný stórum.

Jörð grær, en vér verðum,

Vínu nær of mínum,

helnauð er það, hylja

harm, ágætum barma.

Og enn kvað hann:

Valköstum hlóð eg vestan

vang fyr merkistangir.

Ótt var él það er sóttag

Aðils blám Naðri.

Háði ungum við Engla

Ólafr þrimu stála.

Hélt, né hrafnar sultu,

Hringr á vopna þingi.

Síðan fór Egill með sveit sína á fund Aðalsteins konungs og gekk þegar fyrir konung er hann sat við drykkju. Þar var glaumur mikill. Og er konungur sá að Egill var inn kominn þá mælti hann að rýma skyldi pallinn þann hinn óæðra fyrir þeim og mælti að Egill skyldi sitja þar í öndvegi gegnt konungi.

Egill settist þar niður og skaut skildinum fyrir fætur sér. Hann hafði hjálm á höfði og lagði sverðið um kné sér og dró annað skeið til hálfs en þá skellti hann aftur í slíðrin. Hann sat uppréttur og var gneyptur mjög. Egill var mikilleitur, ennibreiður, brúnamikill, nefið ekki langt en ákaflega digurt, granstæðið vítt og langt, hakan breið furðulega og svo allt um kjálkana, hálsdigur og herðimikill, svo að það bar frá því sem aðrir menn voru, harðleitur og grimmlegur þá er hann var reiður. Hann var vel í vexti og hverjum manni hærri, úlfgrátt hárið og þykkt og varð snemma sköllóttur. En er hann sat, sem fyrr var ritað, þá hleypti hann annarri brúninni ofan á kinnina en annarri upp í hárrætur. Egill var svarteygur og skolbrúnn. Ekki vildi hann drekka þó að honum væri borið en ýmsum hleypti hann brúnunum ofan eða upp.

Aðalsteinn konungur sat í hásæti. Hann lagði og sverð um kné sér. Og er þeir sátu svo um hríð þá dró konungur sverðið úr slíðrum og tók gullhring af hendi sér, mikinn og góðan, og dró á blóðrefilinn, stóð upp og gekk á gólfið og rétti yfir eldinn til Egils. Egill stóð upp og brá sverðinu og gekk á gólfið. Hann stakk sverðinu í bug hringinum og dró að sér, gekk aftur til rúms síns. Konungur settist í hásæti. En er Egill settist niður dró hann hringinn á hönd sér og þá fóru brýnn hans í lag. Lagði hann þá niður sverðið og hjálminn og tók við dýrshorni er honum var borið og drakk af. Þá kvað hann:

Hvarmtangar lætr hanga

hrynvirgil mér brynju

Höðr á hauki troðnum

heiðis vingameiði.

Rítmeiðis kná eg reiða,

ræðr gunnvala bræðir,

gelgju seil á gálga

geirveðrs, lofi að meira.

Þaðan af drakk Egill að sínum hlut og mælti við aðra menn.

Eftir það lét konungur bera inn kistur tvær. Báru tveir menn hvora. Voru báðar fullar af silfri.

Konungur mælti: „Kistur þessar Egill skaltu hafa og, ef þú kemur til Íslands, skaltu færa þetta fé föður þínum, í sonargjöld sendi eg honum. En sumu fé skaltu skipta með frændum ykkrum Þórólfs þeim er þér þykja ágætastir. En þú skalt taka hér bróðurgjöld hjá mér, lönd eða lausaaura, hvort er þú vilt heldur, og ef þú vilt með mér dveljast lengdar þá skal eg hér fá þér sæmd og virðing þá er þú kannt mér sjálfur til segja.“

Egill tók við fénu og þakkaði konungi gjafar og vinmæli. Tók Egill þaðan af að gleðjast og þá kvað hann:

Knáttu hvarms af harmi

hnúpgnípur mér drúpa.

Nú fann eg þann er ennis

ósléttur þær rétti.

Gramr hefir gerðihömrum

grundar upp um hrundið,

Sá er til ýgr, af augum,

armsíma, mér grímu.

Síðan voru græddir þeir menn er sárir voru og lífs auðið.

Egill dvaldist með Aðalsteini konungi hinn næsta vetur eftir fall Þórólfs og hafði hann allmiklar virðingar af konungi. Var þá með honum lið það allt er áður hafði fylgt þeim báðum bræðrum og úr orustu höfðu komist. Þá orti Egill drápu um Aðalstein konung og er í því kvæði þetta:

Nú hefir foldgnár fellda,

fellr jörð und nið Ellu,

hjaldrsnerrandi, harra,

höfuðbaðmr, þrjá jöfra.

Aðalsteinn of vann annað.

Allt er lægra, kynfrægi,

hér sverjum þess, hyrjar

hrannbrjótr, konungmanni.

En þetta er stefið í drápunni:

Nú liggr hæst und hraustum

hreinbraut Aðalsteini.

Aðalsteinn gaf þá enn Agli að bragarlaunum gullhringa tvo og stóð hvor mörk og þar fylgdi skikkja dýr er konungur sjálfur hafði áður borið.

En er voraði lýsti Egill yfir því fyrir konungi að hann ætlaði í brott um sumarið og til Noregs og vita hvað títt er um hag Ásgerðar „konu þeirrar er átt hefir Þórólfur bróðir minn. Þar standa saman fé mikil en eg veit eigi hvort börn þeirra lifa nokkur. Á eg þar fyrir að sjá ef þau lifa en eg á arf allan ef Þórólfur hefir barnlaus andast.“

Konungur sagði: „Það mun vera Egill á þínu forráði að fara héðan á brott ef þú þykist eiga skyldarerindi en hinn veg þykir mér best að þú takir hér staðfestu með mér og slíka kosti sem þú vilt beiðast.“

Egill þakkaði konungi orð sín „eg mun nú fara fyrst svo sem mér ber skylda til en það er líkara að eg vitji hingað þessa heita þá er eg kemst við.“

Konungur bað hann svo gera. Síðan bjóst Egill brott með liði sínu en margt dvaldist eftir með konungi. Egill hafði eitt langskip mikið og þar á hundrað manna eða vel svo. Og er hann var búinn ferðar sinnar og byr gaf þá hélt hann til hafs. Skildust þeir Aðalsteinn konungur með mikilli vináttu. Bað hann Egil koma aftur sem skjótast. Egill kvað svo vera skyldu.

Síðan hélt Egill til Noregs og er hann kom við land fór hann sem skyndilegast inn í Fjörðu. Hann spurði þau tíðindi að andaður var Þórir hersir en Arinbjörn hafði tekið við arfi og gerst lendur maður. Egill fór á fund Arinbjarnar og fékk þar góðar viðtökur. Bauð Arinbjörn honum þar að vera. Egill þekktist það. Lét hann setja upp skipið og vista lið. En Arinbjörn tók við Agli við tólfta mann og var með honum um veturinn.

==Kafli 1==

<ref>REFERENCE TEXT(Fræðigrein:[[PAGE NAME|DISPLAY AS]] OTHER INFO)</ref>

Revision as of 14:46, 8 November 2011

Chapter 55

Kafli 55

Egill jarðaði Þórólf

[1]

References

1. REFERENCE TEXT(Fræðigrein:DISPLAY AS OTHER INFO)

Links