Egla, 73

From WikiSaga
Revision as of 15:19, 8 November 2011 by Jón Karl Helgason (talk | contribs)
Jump to navigationJump to search


Chapter 73

Kafli 73

Vermalandsferð

Egill bjóst til ferðar og þrír menn aðrir hans förunautar. Höfðu þeir hesta og sleða svo sem konungsmenn. Þá voru snjóvar miklir og breyttir vegir allir. Ráða þeir til ferðar er þeir voru búnir og óku upp á land. Og er þeir sóttu austur til Eiða þá var það á einni nótt að féll snjór mikill svo að ógerla sá veguna. Fórst þeim þá seint um daginn eftir því að kafhlaup voru þegar af fór veginum.

Og er á leið daginn dvöldust þeir og áðu hestum sínum. Þar var nær skógarháls einn.

Þá mæltu þeir við Egil: „Nú skiljast hér vegar en hér fram undan hálsinum býr bóndi sá er heitir Arnaldur, vinur vor. Munum vér förunautar fara þangað til gistingar en þér skuluð fara hér upp á hálsinn og þá er þér komið þar mun brátt verða fyrir yður bær mikill og er yður þar vís gisting. Þar býr stórauðigur maður er heitir Ármóður skegg. En á morgun árdegis skulum vér hittast og fara annað kveld til Eiðaskógs. Þar býr góður bóndi er Þorfinnur heitir.“

Síðan skiljast þeir. Fara þeir Egill upp á hálsinn en frá konungsmönnum er það að segja að þegar er sýn fal í milli þeirra Egils þá tóku þeir skíð sín er þeir höfðu haft og stigu þar á, létu síðan ganga aftur á leið sem þeir máttu. Fóru þeir nótt og dag og sneru til Upplanda og þaðan norður um Dofrafjall og léttu eigi fyrr en þeir komu á fund Hákonar konungs og sögðu um sína ferð sem farið hafði.

Egill og förunautar hans fóru um kveldið yfir hálsinn. Var það þar skjótast af að segja að þeir fóru þegar af veginum. Var snjórinn mikill. Lágu hestarnir á kafi annað skeið svo að draga varð upp. Þar voru kleifar og kjarrskógar nokkurir en um kjörrin og kleifarnar var alltorsótt. Var þeim þá seinkan mikil að hestunum en mannfærðin var hin þyngsta. Mæddust þeir þá mjög en þó komust þeir af hálsinum og sáu þá fyrir sér bæ mikinn og sóttu þangað til.

Og er þeir komu í túnið þá sáu þeir að þar stóðu menn úti, Ármóður og sveinar hans. Köstuðust þeir orðum á og spurðust tíðinda. Og er Ármóður vissi að þeir voru sendimenn konungs þá bauð hann þeim þar gisting. Þeir þekktust það. Tóku húskarlar Ármóðs við hestum þeirra og reiða en bóndi bað Egil ganga inn í stofu og þeir gerðu svo. Ármóður setti Egil í öndvegi á hinn óæðra bekk og þar förunauta hans utar frá. Þeir ræddu margt um hversu erfiðlega þeir höfðu farið um kveldið en heimamönnum þótti mikið undur er þeir höfðu fram komist og sögðu að þar væri engum manni fært þó að snjólaust væri.

Þá mælti Ármóður: „Þykir yður eigi sá beini bestur að yður sé borð sett og gefinn náttverður en síðan farið þér að sofa? Munuð þér þá hvílast best.“

„Það líkar oss allvel,“ segir Egill.

Ármóður lét þá setja þeim borð en síðan voru settir fram stórir askar fullir af skyri. Þá lét Ármóður að honum þætti það illa er hann hafði eigi mungát að gefa þeim. Þeir Egill voru mjög þyrstir af mæði. Tóku þeir upp askana og drukku ákaft skyrið og þó Egill miklu mest. Engi kom önnur vistin fram.

Þar var margt hjóna. Húsfreyja sat á þverpalli og þar konur hjá henni. Dóttir bónda var á gólfinu, tíu vetra eða ellefu. Húsfreyja kallaði hana til sín og mælti í eyra henni. Síðan fór mærin utar fyrir borðið þar er Egill sat. Hún kvað:

Því sendi mín móðir
mig við þig til fundar
og orð bera Agli
að ég varir skylduð.
Hildr mælti það horna:
Haga svo maga þínum,
eiga órir gestir
æðra nest á frestum.

Ármóður laust meyna og bað hana þegja „mælir þú það jafnan er verst gegnir.“

Mærin gekk á brott en Egill skaut niður skyraskinum og var þá nær tómur. Voru þá og brott teknir askarnir frá þeim. Gengu þá og heimamenn í sæti sín og voru borð upp tekin um alla stofu og sett á vist. Því næst komu inn sendingar og voru þá settar fyrir Egil sem fyrir aðra menn.

Því næst var öl inn borið og var það hið sterkasta mungát. Var þá brátt drukkinn einmenningur. Skyldi einn maður drekka af dýrshorni. Var þar mestur gaumur að gefinn er Egill var og sveitungar hans, skyldu drekka sem ákafast. Egill drakk ósleitilega fyrst langa hríð. En er förunautar hans gerðust ófærir þá drakk hann fyrir þá það er þeir máttu eigi. Gekk svo til þess er borð fóru brott. Gerðust þá og allir mjög drukknir þeir er inni voru, en hvert full er Ármóður drakk þá mælti hann: „Drekk eg til þín, Egill.“ En húskarlar drukku til förunauta Egils og höfðu hinn sama formála. Maður var til þess fenginn að bera þeim Agli hvert full og eggjaði sá mjög að þeir skyldu skjótt drekka. Egill mælti við förunauta sína að þeir skyldu þá ekki drekka en hann drakk fyrir þá það er þeir máttu eigi annan veg undan komast.

Egill fann þá að honum mundi eigi svo búið eira. Stóð hann þá upp og gekk um gólf þvert þangað er Ármóður sat. Hann tók höndum í axlir honum og kneikti hann upp að stöfum. Síðan þeysti Egill upp úr sér spýju mikla og gaus í andlit Ármóði, í augun og nasirnar og í munninn, rann svo ofan um bringuna. En Ármóði var við andhlaup og er hann fékk öndunni frá sér hrundið þá gaus upp spýja. En allir mæltu þeir er hjá voru, húskarlar Ármóðs, að Egill skyldi fara allra manna armastur og hann væri hinn versti maður af þessu verki er hann skyldi eigi ganga út er hann vildi spýja en verða eigi að undrum inni í drykkjustofunni.

Egill segir: „Ekki er að hallmæla mér um þetta þótt eg geri sem bóndi gerir. Spýr hann af öllu afli eigi síður en eg.“

Síðan gekk Egill til rúms síns og settist niður, bað þá gefa sér að drekka. Þá kvað Egill við raust:

Títt erumk verð að votta,
vætti berk að eg hætti
þung til þessar göngu, þinn kinnalá minni.
Margr velr gestr, þar er gistir,
gjöld, finnumst vér sjaldan,
Ármóði liggr, æðri,
öldra dregg í skeggi.

Ármóður hljóp upp og út en Egill bað gefa sér drekka. Þá mælti húsfreyja við þann mann er þeim hafði skenkt um kveldið að hann skyldi gefa drykk svo að þá skyrti eigi meðan þeir vildu drekka. Síðan tók hann dýrshorn mikið og fyllti og bar til Egils. Egill kneyfði af horninu í einum drykk. Þá kvað hann:

Drekkum úr, þó að Ekkils
eykríðr beri tíðum
horna sund að hendi,
hvert full, bragar Ulli.
Leifi eg vætr, þó að laufa
leikstærir mér færi
hrosta tjörn í horni,
horn til dags að morgni.

Egill drakk um hríð og kneyfði hvert horn er að honum kom en lítil var þá gleði í stofunni þótt nokkurir menn drykkju. Síðan stendur Egill upp og förunautar hans og taka vopn sín af veggjum er þeir höfðu uppfest, ganga síðan til kornhlöðu þeirrar er hestar þeirra voru inni. Lögðust þeir þar niður í hálm og sváfu um nóttina.


[1]

References

  1. REFERENCE TEXT(Fræðigrein:DISPLAY AS OTHER INFO)

Links