Njála, 033
Njáls saga (Table of Contents) | |||||||||||||||||||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
31 | 32 | 33 | 34 | 35 | 36 | 37 | 38 | 39 | 40 | 41 | 42 | 43 | 44 | 45 | 46 | 47 | 48 | 49 | 50 | 51 | 52 | 53 | 54 | 55 | 56 | 57 | 58 | 59 | 60 |
61 | 62 | 63 | 64 | 65 | 66 | 67 | 68 | 69 | 70 | 71 | 72 | 73 | 74 | 75 | 76 | 77 | 78 | 79 | 80 | 81 | 82 | 83 | 84 | 85 | 86 | 87 | 88 | 89 | 90 |
91 | 92 | 93 | 94 | 95 | 96 | 97 | 98 | 99 | 100 | 101 | 102 | 103 | 104 | 105 | 106 | 107 | 108 | 109 | 110 | 111 | 112 | 113 | 114 | 115 | 116 | 117 | 118 | 119 | 120 |
121 | 122 | 123 | 124 | 125 | 126 | 127 | 128 | 129 | 130 | 131 | 132 | 133 | 134 | 135 | 136 | 137 | 138 | 139 | 140 | 141 | 142 | 143 | 144 | 145 | 146 | 147 | 148 | 149 | 150 |
151 | 152 | 153 | 154 | 155 | 156 | 157 | 158 | 159 |
Chapter 33
TITLE.
ENSKA
References
Kafli 33
Gunnar reið og þeir allir. En er þeir komu á þing þá voru þeir svo vel búnir að engir voru þar jafnvel búnir og fóru menn út úr hverri búð að undrast þá. Gunnar reið til búðar Rangæinga og var þar með frændum sínum. Margir menn fóru að finna Gunnar og spyrja hann tíðinda. Hann var við alla menn léttur og kátur og sagði öllum slíkt er vildu.
Það var einn dag er Gunnar gekk frá Lögbergi. Hann gekk fyrir Mosfellingabúð. Þá sá hann konu fara í móti sér og var vel búin. En er þau fundust kvaddi hún þegar Gunnar. Hann tók vel kveðju hennar og spurði hvað kvenna hún væri. Hún nefndist Hallgerður og kvaðst vera dóttir Höskulds Dala-Kollssonar. Hún mælti til hans djarflega og bað segja sér frá ferðum sínum en hann kvaðst ekki varna mundu henni máls. Settust þau þá niður og töluðu. Hún var svo búin að hún var í rauðum kyrtli og hafði yfir sér skarlatsskikkju hlaðbúna í skaut niður. Hárið tók ofan á bringu henni og var bæði mikið og fagurt. Gunnar var í skarlatsklæðum er Haraldur konungur Gormsson gaf honum. Hann hafði og gullhring á hendi þann er Hákon jarl gaf honum. Þau töluðu lengi hátt. Þar kom er spurt var hvort hún væri ógefin.
Hún sagði að svo væri „og er það ekki margra að hætta á það.“
„Þykir þér hvergi fullkosta?“
„Eigi er það,“ segir hún, „en mannvönd mun eg vera.“
„Hversu munt þú svara ef eg bið þín?“
„Það mun þér ekki í hug,“ segir hún.
„Eigi er það,“ segir hann.
„Ef þér er nokkur hugur á þá finn þú föður minn.“
Síðan skildu þau talið.
Gunnar gekk þegar til búðar Dalamanna og fann mann úti fyrir búðinni og spyr hvort Höskuldur væri í búð. Sá sagði að hann væri í búð. Gekk þá Gunnar inn. Höskuldur og Hrútur tóku vel við Gunnari. Hann settist niður á meðal þeirra og fannst það ekki í tali þeirra að þar hefði missætti verið í meðal.
Þar kom niður ræða Gunnars hversu þeir bræður mundu því svara ef hann bæði Hallgerðar.
„Vel,“ segir Höskuldur, „ef þér er það alhugað.“
Gunnar segir sér það alvöru „en svo skildum vér næstum að mörgum mundi það þykja líklegt að hér mundi ekki samband verða.“
„Hversu líst þér, Hrútur frændi?“ segir Höskuldur.
Hrútur svaraði: „Ekki þykir mér þetta jafnræði.“
„Hvað finnur þú til þess?“ segir Gunnar.
Hrútur mælti: „Því mun eg svara þér um þetta er satt er. Þú ert maður vaskur og vel að þér en hún er blandin mjög og vil eg þig í öngu svíkja.“
„Vel mun þér fara,“ segir Gunnar, „en þó mun eg það fyrir satt hafa að þér virðið í fornan fjandskap ef þér viljið eigi gera mér kostinn.“
„Eigi er það,“ segir Hrútur, „meir er hitt að eg sé að þú mátt nú ekki við gera. En þótt vér kaupum eigi þá vildum vér þó vera vinir þínir.“
„Eg hefi talað við hana,“ segir Gunnar, „og er það ekki fjarri hennar skapi.“
Hrútur mælti: „Veit eg að báðum er þetta girndarráð. Hættið þið og mestu til hversu fer.“
Hrútur sagði Gunnari ófregið allt um skapferði Hallgerðar og þótti Gunnari fyrst ærið margt það er áfátt var. En þar kom síðar að saman dró kaupmála með þeim. Var þá sent eftir Hallgerði. Var þá talað um málið svo að hún var við. Létu þeir nú sem fyrr að hún festi sig sjálf. Skyldi þetta boð vera að Hlíðarenda og skyldi fara fyrst leynilega en þó kom þar er allir vissu.
Gunnar reið heim af þingi og kom til Bergþórshvols og sagði Njáli frá kaupum sínum. Hann tók þessu þunglega. Gunnar spurði hví Njáli þætti þetta svo óráðlegt.
„Því að af henni mun standast allt hið illa er hún kemur austur hingað,“ segir Njáll.
„Aldrei skal hún spilla okkru vinfengi,“ segir Gunnar.
„Það mun þó svo nær fara,“ segir Njáll, „en þó munt þú jafnan bæta fyrir henni.“
Gunnar bauð Njáli til boðs og öllu því þaðan sem hann vildi að færi. Njáll hét að fara. Síðan reið Gunnar heim og reið um héraðið að bjóða mönnum.