Njála, 001: Difference between revisions

From WikiSaga
Jump to navigationJump to search
m (moved Njála, 1 to Njála, 001)
No edit summary
Line 1: Line 1:
#REDIRECT [[Njála, 001]]
{{Njála_TOC}}
 
==Chapter X==
 
'''XXX.'''
 
ENSKA
 
==References==
 
<references />
 
==Kafli 1==
 
Mörður hét maður er kallaður var gígja. Hann var sonur Sighvats hins rauða. Hann bjó á Velli á Rangárvöllum. Hann var ríkur höfðingi og málafylgjumaður mikill og svo mikill lagamaður að engir þóttu löglegir dómar nema hann væri í. Hann átti dóttur eina er Unnur hét. Hún var væn kona og kurteis og vel að sér og þótti sá bestur kostur á Rangárvöllum.
 
Nú víkur sögunni vestur til Breiðafjarðardala. Maður er nefndur Höskuldur. Hann var Dala-Kollsson. Móðir hans hét Þorgerður og var dóttir Þorsteins hins rauða, Ólafssonar hins hvíta, Ingjaldssonar, Helgasonar. Móðir Ingjalds var Þóra, dóttir Sigurðar orms í auga, Ragnarssonar loðbrókar. Unnur hin djúpúðga var móðir Þorsteins rauðs, dóttir Ketils flatnefs, Bjarnarsonar bunu, Grímssonar hersis úr Sogni. Höskuldur bjó á Höskuldsstöðum í Laxárdal.
 
Hrútur hét bróðir hans. Hann bjó á Hrútsstöðum. Hann var sammæður við Höskuld. Faðir hans var Herjólfur. Hrútur var vænn maður, mikill og sterkur, vígur vel og hógvær í skapi, manna vitrastur, hagráður við vini sína en tillagagóður hinna stærri mála.
 
Það var einhverju sinni að Höskuldur hafði vinaboð og þar var Hrútur bróðir hans og sat hið næsta honum. Höskuldur átti sér dóttur er Hallgerður hét. Hún lék sér á gólfinu við aðrar meyjar. Hún var fríð sýnum og mikil vexti og hárið svo fagurt sem silki og svo mikið að það tók ofan á belti.
 
Höskuldur kallar á hana: „Farðu hingað til mín,“ sagði hann.
 
Hún gekk þegar til hans. Hann tók undir kverkina og kyssti hana. Síðan gekk hún í braut.
 
Þá ræddi Höskuldur til Hrúts: „Hversu líst þér á mey þessa, þykir þér eigi fögur vera?“
 
Hrútur þagði við. Höskuldur mælti til hans í annað sinn.
 
Hrútur svaraði þá: „Ærið fögur er mær sjá og munu margir þess gjalda. En hitt veit eg eigi hvaðan þjófsaugu eru komin í ættir vorar.“
 
Þá reiddist Höskuldur og var fátt um með þeim bræðrum nokkura hríð.
 
Bræður Hallgerðar voru þeir Þorleikur, faðir Bolla, og Ólafur, faðir Kjartans, og Bárður.
 
==Tilvísanir==
 
<references />
==Links==
 
[[Category:Njáls saga]][[Category:Njáls saga. Efnisyfirlit]]
[[Category:All entries]]

Revision as of 09:07, 24 June 2014

Chapter X

XXX.

ENSKA

References

Kafli 1

Tilvísanir

Links