Njála, 004

From WikiSaga
Revision as of 09:02, 24 June 2014 by Olga (talk | contribs) (Created page with "{{Njála_TOC}} ==Chapter 4== '''XXX.''' ENSKA ==References== <references /> ==Kafli 4== Um vorið spurði hann til Sóta að hann var farinn suður til Danmerkur með erf...")
(diff) ← Older revision | Latest revision (diff) | Newer revision → (diff)
Jump to navigationJump to search


Chapter 4

XXX.

ENSKA

References


Kafli 4

Um vorið spurði hann til Sóta að hann var farinn suður til Danmerkur með erfðina. Þá gekk Hrútur á fund Gunnhildar og segir henni frá ferðum hans.

Gunnhildur mælti: „Eg mun fá þér tvö langskip skipuð mönnum og þar með hinn hraustasta mann, Úlf óþveginn, gestahöfðingja vorn. En þó gakk þú að finna konung áður þú farir.“

Hrútur gerði svo. Og er hann kom fyrir konung þá segir hann konungi um ferð Sóta og það er hann ætlar eftir honum að halda.

Konungur mælti: „Hvern styrk hefir móðir mín til lagið með þér?“

„Langskip tvö og fyrir liðinu Úlf óþveginn,“ sagði Hrútur.

„Vel er þess fengið,“ sagði konungur. Nú vil eg gefa þér önnur tvö skip og munt þú þó þurfa þessa liðs alls.“

Síðan fylgdi hann Hrúti til skips og mælti: „Fari þér vel.“

Síðan sigldi Hrútur liði sínu suður.


Tilvísanir

Links