Njála, 011

From WikiSaga
Revision as of 09:18, 24 June 2014 by Olga (talk | contribs) (Created page with "{{Njála_TOC}} ==Chapter 11== '''XXX.''' ENSKA ==References== <references /> ==Kafli 11== Þorvaldur reið heim frá boðinu og kona hans með honum og Þjóstólfur. Han...")
(diff) ← Older revision | Latest revision (diff) | Newer revision → (diff)
Jump to navigationJump to search


Chapter 11

XXX.

ENSKA

References


Kafli 11

Þorvaldur reið heim frá boðinu og kona hans með honum og Þjóstólfur. Hann fylgdi hesti hennar og töluðu þau enn hljótt.

Ósvífur veik að syni sínum og mælti: „Unir þú vel ráðinu eða hversu fór tal með ykkur?“

„Vel,“ segir hann, „alla blíðu lét hún uppi við mig og máttu sjá mót á er hún hlær við hvert orð.“

„Eigi ætla eg hlátur hennar jafngóðan sem þú,“ segir Ósvífur, „en það mun þó síðar reynast.“

Þau ríða þar til er þau koma heim. En um kveldið sat hún hjá bónda sínum og skipaði Þjóstólfi hið næsta sér innar frá. Fátt áttust þeir við, Þjóstólfur og Þorvaldur, og varð þeim fátt að orðum um veturinn og fór svo fram.

Hallgerður var fengsöm og stórlynd enda kallaði hún til alls þess er aðrir áttu í nánd og hafði allt í sukki. En er voraði var þar búskortur og skorti bæði mjöl og skreið.

Hallgerður kom að máli við Þorvald og ræddi: „Eigi muntu þurfa að sitja til alls því að bæði þarf í búið mjöl og skreið.“

Þorvaldur mælti: „Ekki fékk eg minna til bús en vant er og entist þá allt á sumar fram.“

Hallgerður mælti: „Ekki fer eg að þótt þú hafir svelt þig til fjár og faðir þinn.“

Þá reiddist Þorvaldur og laust hana í andlitið svo að blæddi og gekk síðan í brottu og kvaddi húskarla sína með sér og hrundu þeir fram skútu og hljópu þar á sex karlar og reru út í Bjarnareyjar, tóku þar skreið sína og mjöl.

Nú er sagt frá Hallgerði að hún sat úti og var skapþungt.

Þjóstólfur gekk að og sá að hún var særð í andlitinu og mælti: „Hví ertu svo illa leikin?“

„Þorvaldur veldur því, bóndi minn,“ sagði hún, „og stóðstu mér þá fjarri ef þér þætti nokkuð undir um mig.“

„Eg vissi eigi,“ segir hann, „en þó skal eg þessa hefna.“

Síðan gekk hann á brott og til fjöru og hratt fram skipi sexæru og hafði í hendi öxi mikla er hann átti, vafinskeftu. Hann stígur á skip og rær út í Bjarneyjar. Og er hann kom þar voru allir menn rónir nema Þorvaldur og förunautar hans. Hann var að að hlaða skútuna en þeir báru á út, menn hans.

Þjóstólfur kom að í því og hljóp upp á skútuna og hlóð með honum og mælti: „Bæði ertu að þessu lítilvirkur og óhagvirkur.“

Þorvaldur mælti: „Hyggstu betur gera munu?“ sagði hann.

„Það eitt munum við að hafast að eg mun betur gera en þú og er sú kona illa gift er þú átt,“ sagði hann, „og skyldu ykkrar samfarar skammar vera.“

Þorvaldur þreif upp járnsax eitt er var hjá honum og leggur til Þjóstólfs. Hann hafði breiðöxina á öxl sér og laust á móti og kom á höndina Þorvalds og brotnaði handleggurinn en saxið féll niður. Síðan færði Þjóstólfur upp öxina í annað sinn og hjó í höfuð Þorvalds og hafði hann þegar bana.


Tilvísanir

Links