Njála, 014

From WikiSaga
Revision as of 09:19, 24 June 2014 by Olga (talk | contribs) (Created page with "{{Njála_TOC}} ==Chapter 14== '''XXX.''' ENSKA ==References== <references /> ==Kafli 14== Þeir bræður fjölmenna mjög og höfðu valið lið. Þeir riðu vestur til D...")
(diff) ← Older revision | Latest revision (diff) | Newer revision → (diff)
Jump to navigationJump to search


Chapter 14

XXX.

ENSKA

References


Kafli 14

Þeir bræður fjölmenna mjög og höfðu valið lið. Þeir riðu vestur til Dala og komu á Höskuldsstaði og var þar fjölmenni mikið fyrir. Skipuðu þeir Höskuldur og Hrútur annan bekk en brúðgumi annan. Hallgerður sat á palli og samdi sér vel. Þjóstólfur gekk með öxi reidda og lét það engi sem vissi.

En er boði var lokið fór Hallgerður suður með þeim. En er þau komu suður til Varmalækjar þá spurði Þórarinn Hallgerði ef hún vildi taka við búi.

„Eigi vil eg það,“ segir hún.

Hallgerður sat á sér um veturinn og líkaði við hana ekki illa.

En um vorið töluðu þeir um fjárhagi sína, bræður, og mælti Þórarinn: „Eg vil gefa ykkur upp búið að Varmalæk því að ykkur er það hægst um hönd. En eg mun fara suður í Laugarnes og búa þar. En Engey skulum við eiga báðir saman.“

Glúmur vildi að svo væri. Fór Þórarinn suður byggðum en þau bjuggu þar eftir. Réð Hallgerður sér hjón. Hún var örlynd og fengsöm. En um sumarið fæddi hún meybarn. Glúmur sagði henni hvað heita skyldi.

„Hana skal kalla eftir föðurmóður minni og skal heita Þorgerður því að hún var komin frá Sigurði Fáfnisbana í föðurætt sína að langfeðgatölu.“

Mey var vatni ausin og þetta nafn gefið. Hún óx þar upp og gerðist lík móður sinni að yfirlitum. Þau komu vel ásamt, Glúmur og Hallgerður, og fór fram um hríð.

Þau tíðindi spurðust úr Bjarnarfirði norðan að Svanur hafði róið að veiðiskap um vorið og kom að honum austanveður mikið og rak þá upp að Veiðilausu og týndust þar. En fiskimenn þeir er voru á Kaldbak þóttust sjá Svan ganga inn í fjallið Kaldbakshorn og var honum þar vel fagnað en sumir mæltu því í móti og kváðu öngu gegna en það vissu allir að hann fannst hvergi, hvorki lífs né dauður. En er Hallgerður spurði þetta þá þótti henni mikill skaði eftir móðurbróður sinn.

Glúmur bauð Þórarni að skipta um löndin.

Hann kveðst eigi það vilja „en ef eg lifi þér lengur þá ætla ég mér Varmalæk.“

Glúmur segir Hallgerði.

Hún svaraði: „Maklegur er Þórarinn þess frá oss,“ sagði hún.


Tilvísanir

Links