Njála, 015

From WikiSaga
Revision as of 09:19, 24 June 2014 by Olga (talk | contribs) (Created page with "{{Njála_TOC}} ==Chapter 15== '''XXX.''' ENSKA ==References== <references /> ==Kafli 15== Þjóstólfur hafði barið húskarl Höskulds. Rekur hann Þjóstólf í braut....")
(diff) ← Older revision | Latest revision (diff) | Newer revision → (diff)
Jump to navigationJump to search


Chapter 15

XXX.

ENSKA

References


Kafli 15

Þjóstólfur hafði barið húskarl Höskulds. Rekur hann Þjóstólf í braut. Hann tók hest sinn og vopn og mælti við Höskuld: „Nú mun eg á braut fara og koma aldrei aftur.“

„Allir munu því fagna,“ segir Höskuldur.

Þjóstólfur reið þar er hann kom til Varmalækjar. Hann hafði þar góðar viðtökur af Hallgerði en eigi illar af Glúmi. Hann sagði Hallgerði að faðir hennar hefði hann á braut rekið og bað hana ásjár. Hún svaraði honum því að hún kveðst honum engu mega heita um þarvist hans fyrr en hún fyndi Glúm.

„Fer vel með ykkur?“ segir hann.

„Vel er um ástir okkrar,“ segir hún.

Síðan gekk hún til máls við Glúm og lagði hendur um háls honum og mælti: „Skalt þú veita mér bæn þá er eg mun biðja þig?“

„Veita mun eg þér ef sæmd er í,“ segir hann, „eða hvers vilt þú biðja?“

Hún mælti: „Þjóstólfur er rekinn braut vestan og vildi eg að þú leyfðir honum að vera hér. En eg vil þó eigi þvert taka ef þér er lítið um.“

Glúmur mælti: „Nú er þér fer vel þá skal eg veita þér en seg eg þér ef hann tekur nokkuð illt til að hann skal þegar á braut verða.“

Hún gengur til Þjóstólfs og segir honum.

Hann svaraði: „Nú fer þér enn vel sem von var.“

Síðan var hann þar og sat á sér um hríð en þar kom að hann þótti þar öllu spilla. Hann hlífðist þá við engan mann nema við Hallgerði eina en hún veitti honum aldrei eftirmæli þá er hann átti við aðra. Þórarinn bróðir Glúms taldi á við hann er hann lét hann þar vera og kvað illa gefast mundu og fara enn sem fyrr ef hann væri þar. Glúmur svaraði vel og brá þó á sitt ráð.


Tilvísanir

Links