Njála, 019

From WikiSaga
Revision as of 09:20, 24 June 2014 by Olga (talk | contribs) (Created page with "{{Njála_TOC}} ==Chapter 19== '''XXX.''' ENSKA ==References== <references /> ==Kafli 19== Gunnar hét maður. Hann var frændi Unnar. Rannveig hét móðir hans og var Sig...")
(diff) ← Older revision | Latest revision (diff) | Newer revision → (diff)
Jump to navigationJump to search


Chapter 19

XXX.

ENSKA

References


Kafli 19

Gunnar hét maður. Hann var frændi Unnar. Rannveig hét móðir hans og var Sigfúsdóttir Sighvatssonar hins rauða. Hann var veginn við Sandhólaferju. Faðir Gunnars hét Hámundur og var sonur Gunnars Baugssonar. Við þann er kennt Gunnarsholt. Móðir Hámundar hét Hrafnhildur. Hún var Stórólfsdóttir Hængssonar. Stórólfur var bróðir Hrafns lögsögumanns. Sonur Stórólfs var Ormur hinn sterki.

Gunnar Hámundarson bjó að Hlíðarenda í Fljótshlíð. Hann var mikill maður vexti og sterkur, manna best vígur. Hann hjó báðum höndum og skaut ef hann vildi og hann vó svo skjótt með sverði að þrjú þóttu á lofti að sjá. Hann skaut manna best af boga og hæfði allt það er hann skaut til. Hann hljóp meir en hæð sína með öllum herklæðum og eigi skemmra aftur en fram fyrir sig. Hann var syndur sem selur og eigi var sá leikur er nokkur þyrfti við hann að keppa og hefir svo verið sagt að engi væri hans jafningi. Hann var vænn að yfirliti og ljóslitaður, rétt nefjaður og hafið upp í framanvert, bláeygur og snareygur og roði í kinnunum, hárið mikið og fór vel og vel litt. Manna kurteisastur var hann og harðgjör í öllu, fémildur, stilltur vel, vinfastur og vinavandur. Hann var vel auðigur að fé.

Bróðir hans hét Kolskeggur. Hann var mikill maður og sterkur, drengur góður og öruggur í öllu. Annar bróðir hans hét Hjörtur. Hann var þá í barnæsku. Ormur skógarnef var bróðir Gunnars laungetinn; er hann ekki við þessa sögu. Arngunnur hét systir Gunnars. Hana átti Hróar Tungugoði, son Una hins óborna Garðarssonar. Sá fann Ísland. Son Arngunnar var Hámundur halti er bjó á Hámundarstöðum.


Tilvísanir

Links