Njála, 020

From WikiSaga
Revision as of 09:20, 24 June 2014 by Olga (talk | contribs) (Created page with "{{Njála_TOC}} ==Chapter 20== '''XXX.''' ENSKA ==References== <references /> ==Kafli 20== Njáll hét maður. Hann var sonur Þorgeirs gollings Þórólfssonar. Móðir N...")
(diff) ← Older revision | Latest revision (diff) | Newer revision → (diff)
Jump to navigationJump to search


Chapter 20

XXX.

ENSKA

References


Kafli 20

Njáll hét maður. Hann var sonur Þorgeirs gollings Þórólfssonar. Móðir Njáls hét Ásgerður og var dóttir Árs hersis hins ómálga. Hún hafði komið út hingað til Íslands og numið land fyrir austan Markarfljót milli Öldusteins og Seljalandsmúla. Sonur hennar var Holta-Þórir, faðir þeirra Þorleifs kráks, er Skógverjar eru frá komnir, og Þorgríms hins mikla og Skorar-Geirs.

Njáll bjó að Bergþórshvoli í Landeyjum. Annað bú átti hann í Þórólfsfelli. Njáll var vel auðigur að fé og vænn að áliti. Honum vóx eigi skegg. Hann var lögmaður svo mikill að engi fannst hans jafningi. Vitur var hann og forspár, heilráður og góðgjarn og var allt að ráði það er hann réð mönnum, hógvær og drenglyndur. Hann leysti hvers manns vandræði er á hans fund kom.

Bergþóra hét kona hans. Hún var Skarphéðinsdóttir, kvenskörungur mikill og drengur góður og nokkuð skaphörð. Þau áttu sex börn, dætur þrjár og sonu þrjá og koma þeir allir við þessa sögu síðan.


Tilvísanir

Links