Njála, 021

From WikiSaga
Revision as of 09:20, 24 June 2014 by Olga (talk | contribs) (Created page with "{{Njála_TOC}} ==Chapter 21== '''XXX.''' ENSKA ==References== <references /> ==Kafli 21== Nú er þar til máls að taka er Unnur hefir látið allt lausafé sitt. Hún g...")
(diff) ← Older revision | Latest revision (diff) | Newer revision → (diff)
Jump to navigationJump to search


Chapter 21

XXX.

ENSKA

References


Kafli 21

Nú er þar til máls að taka er Unnur hefir látið allt lausafé sitt. Hún gerði ferð sína til Hlíðarenda og tók Gunnar vel við frændkonu sinni. Var hún þar um nótt. Um daginn eftir sátu þau úti og töluðu. Þar komu niður ræður hennar að hún sagði honum hversu henni féll þungt til fjár.

„Illa er það,“ sagði hann.

„Hver úrræði vilt þú veita mér?“ sagði hún.

Hann svaraði: „Hafðu fé svo mikið sem þú þarft er eg á á leigustöðum.“

„Eigi vil eg eyða fé þínu,“ sagði hún.

„Hversu vilt þú þá?“ segir hann.

„Eg vil að þú heimtir fé mitt undan Hrúti,“ segir hún.

„Eigi þykir mér það vænt,“ sagði hann, „þar er faðir þinn fékk eigi heimt og var hann lögmaður mikill,“ sagði hann, „en eg kann lítt til laga.“

Hún svaraði: „Meir þreytti Hrútur það með kappi en með lögum en faðir minn var gamall og þótti mönnum því það ráð að þeir þreyttu það ekki með sér. Enda er sá engi minn frændi að gangi í þetta mál ef þú hefir eigi þrek til.“

„Þora mun eg,“ segir hann, „að heimta fé þetta en eigi veit eg hversu upp skal taka málið.“

Hún svaraði: „Farðu og finn Njál að Bergþórshvoli. Hann mun ráðin kunna til að leggja. Er hann og vin þinn mikill.“

„Von er mér að hann ráði mér heilt sem öllum öðrum,“ segir hann.

Svo lauk með þeim að Gunnar tók við málinu en fé fékk hann henni til búsins sem hún þyrfti og fór hún heim síðan.

Gunnar ríður nú að finna Njál og tók hann við honum vel og gengu þegar á tal.

Gunnar mælti: „Heilræði er eg kominn að sækja að þér.“

Njáll svaraði: „Margir eru þess vinir mínir maklegir en þó ætla eg að leggja mesta stund á við þig.“

Gunnar mælti: „Eg vil gera þér kunnigt að eg hefi tekið fjárheimtu af Unni á Hrút.“

„Það er mikið vandamál,“ segir Njáll, „og mikil hætta hversu fer. En þó mun eg leggja til með þér það er mér þykir vænast og mun það endast ef þú bregður eigi af en líf þitt er í hættu ef þú gerir eigi svo.“

„Hvergi skal eg af bregða,“ segir Gunnar.

Þá þagði Njáll nokkura stund og mælti síðan: „Hugsað hefi eg málið og mun það duga.“


Tilvísanir

Links