Njála, 023

From WikiSaga
Revision as of 09:21, 24 June 2014 by Olga (talk | contribs) (Created page with "{{Njála_TOC}} ==Chapter 23== '''XXX.''' ENSKA ==References== <references /> ==Kafli 23== Gunnar reið heiman tveim nóttum síðar og tveir menn með honum. Þeir riðu ...")
(diff) ← Older revision | Latest revision (diff) | Newer revision → (diff)
Jump to navigationJump to search


Chapter 23

XXX.

ENSKA

References


Kafli 23

Gunnar reið heiman tveim nóttum síðar og tveir menn með honum. Þeir riðu þar til er þeir komu á Bláskógaheiði. Þá riðu menn í móti þeim og spurðu hver sá væri hinn mikli maður er svo lítt var sýndur. En förunautar hans sögðu að þar var Kaupa-Héðinn.

Þeir sögðu að þá var eigi hins verra eftir von er slíkur fór fyrir.

Héðinn lét þegar sem hann mundi á þá ráða en þó fóru hvorir leið sína.

Gunnar fór með öllu sem fyrir hann var lagt og var á Höskuldsstöðum um nótt og fór þaðan ofan eftir dalnum og kom á næsta bæ á Hrútsstöðum. Þar lét hann falt smíðið og seldi þrjá smíðisgripi. Bóndi fann að á var smíðinu og kallaði fals í. Héðinn réð þegar á búanda. Það var sagt Hrúti. Hann sendi eftir Héðni. Fór hann þegar á fund Hrúts og hafði góðar viðtökur. Skipaði Hrútur honum gagnvart sér. Fóru orð þeirra mjög sem Njáll ætlaði. En er talið kom á Rangárvöllu og Hrútur frétti þar að mönnum þá kvað hann vísu þessa:


5.Menn eru síst að sönnu,

slíkt talar þjóð í hljóði,

oft heyrt er það, eftir

öll á Rangárvöllum.

Mörð frá eg gígju gerðu

gunnhríðar markunnar,

ungur var seima slöngvir

slíkur að spekt og ríki.


Hrútur mælti þá: „Skáld ert þú, Héðinn, en hefir þú heyrt hversu fór með okkur Merði?“

Héðinn kvað þá enn vísu:


6.Heyrt hafa eg hrings að bjartrar

husti þráðs með ráðum,

jarðar undirgjörðar

álmur vænti eg þig rænti.

Réðu hodda hlæði

haldendur við þig skjaldar

áður rauð seima sneiðir

sverð að hann eigi berðist.


Þá svaraði Hrútur honum hversu upp skyldi taka málið og stefndi fyrir málinu en hann mælti eftir og stefndi rangt. Þá brosti Hrútur og grunaði ekki. Þá mælti hann að Hrútur skyldi stefna í annað sinn. Svo gerði Hrútur. Héðinn stefndi þá í annað sinn og stefndi þá rétt og vitnaði undir förunauta sína að hann stefndi handseldri sök Unnar Marðardóttur. Hann fór til svefns sem aðrir menn um kveldið.

En þegar er Hrútur var sofnaður tóku þeir klæði sín og vopn og gengu út og fóru til hesta sinna og riðu yfir ána og svo fram Hjarðarholts megin þar til er þraut dalinn og eru þar í fjöllunum millum Haukadals og komu sér þar er eigi mátti finna þá fyrr en riðið væri að þeim.

Höskuldur vaknar þessa nótt á Höskuldsstöðum öndverða og vakti upp alla heimamenn sína.

„Eg vil segja yður draum minn,“ segir hann. „Eg þóttist sjá bjarndýri mikið ganga út úr húsunum og vissi eg að eigi fannst þessa dýrs maki og fylgdu því húnar tveir og vildu þeir vel dýrinu. Það stefndi til Hrútsstaða og gekk þar inn í húsin. Síðan vaknaði eg. Nú vil eg spyrja yður hvað þér sáuð til hins mikla manns.“

Einn maður svaraði honum: „Það sá eg að fram undan erminni kom eitt gullhlað og rautt klæði. Á hægri hendi hafði hann gullhring.“

Höskuldur mælti: „Þetta er engis manns fylgja nema Gunnars frá Hlíðarenda enda þykist eg nú sjá allt eftir. Skulum vér nú ríða á Hrútsstaði.“

Þeir gerðu svo. Hrútur lá í lokrekkju og spyr hverjir komnir eru. Höskuldur sagði til sín og spurði hvað þar væri gesta.

Hann sagði: „Hér er Kaupa-Héðinn.“

Höskuldur sagði: „Breiðari mun um bakið. Eg get verið mun hafa Gunnar frá Hlíðarenda.“

„Þá mun hér slægleiksmunur orðið hafa,“ segir Hrútur.

„Hvað er að orðið?“ segir Höskuldur.

„Eg sagði honum hversu upp skyldi taka málið Unnar og stefndi eg mér sjálfur en hann stefndi eftir. Og mun hann þann hafa málatilbúnaðinn og er sá réttur.“

„Mikill er viskumunur orðinn,“ segir Höskuldur, „og mun eigi Gunnar einn hafa um ráðið. Njáll mun þessi ráð hafa til lagt því að engi er hans maki að viti.“

Þeir leita nú Héðins og er hann allur í brottu. Síðan söfnuðu þeir liði og leituðu þeirra þrjá daga og fundu þá eigi.

Gunnar reið suður af fjallinu til Haukadals og fyrir austan skarð og norður til Holtavörðuheiðar og til þess er hann kom heim.


Tilvísanir

Links