Njála, 024

From WikiSaga
Revision as of 09:21, 24 June 2014 by Olga (talk | contribs) (Created page with "{{Njála_TOC}} ==Chapter 24== '''XXX.''' ENSKA ==References== <references /> ==Kafli 24== Gunnar reið til alþingis. Þeir Hrútur og Höskuldur riðu og til þings og f...")
(diff) ← Older revision | Latest revision (diff) | Newer revision → (diff)
Jump to navigationJump to search


Chapter 24

XXX.

ENSKA

References


Kafli 24

Gunnar reið til alþingis. Þeir Hrútur og Höskuldur riðu og til þings og fjölmenntu mjög. Gunnar sækir mál þetta á þingi. Hann kvaddi búa til máls og höfðu þeir Hrútur ætlað að veita honum atgöngu en treystust eigi. Síðan gekk Gunnar að Breiðfirðingadómi og bauð Hrúti að hlýða til eiðspjalls síns og framsögu sakar og sóknargagna allra. Eftir það vann hann eið og sagði fram sök. Síðan lét hann bera stefnuvætti, þá sakartökuvætti. Njáll var eigi við dóma.

Nú sótti Gunnar málið þar til er hann bauð til varna. Hrútur nefndi votta og sagði ónýtt málið og sagði hann misst hafa þeirra þriggja vottorða er í dóminn áttu að koma. Eitt, það er nefnt var fyrir rekkjustokki, annað fyrir karldyrum, þriðja að Lögbergi. Njáll var þá kominn til dóma og kveðst borgið munu geta málinu og sökinni ef þeir vildu það þreyta.

„Eigi vil eg það,“ sagði Gunnar, „eg skal gera Hrúti slíkan sem hann gerði Merði frænda mínum. Eða hvort eru þeir bræður svo nær, Hrútur og Höskuldur, að þeir megi heyra mál mitt?“

„Heyra megum við,“ segir Hrútur, „eða hvað viltu?“

Gunnar mælti: „Þeir séu heyrandi vottar er hjá eru að eg skora þér, Hrútur, til hólmgöngu og skulum við berjast í dag í hólma þeim er hér er í Öxará. En ef þú vilt eigi berjast við mig þá greið þú út féið allt í dag.“

Síðan kvað Gunnar vísu:


7.Það skal æ, Hrútur, að hvoru,

hef eg óð í dag góðan,

skora á hólm og hjálma

hjaldruður við mig skjalda.

Þeir sé er herðendur heyra

Héðins gáttar nú vottar,

auð nema út viljir greiða

ölur mund refils grundar.


Síðan gekk Gunnar frá dómum með öllu sínu föruneyti. Þeir Höskuldur og Hrútur gengu og heim og var málið hvorki sótt né varið þaðan af.

Hrútur mælti er hann kom inn í búðina: „Það hefir mig aldrei fyrr hent að nokkur maður hafi mér hólmgöngu boðið að eg hafi undan gengið.“

„Það munt þú ætla að berjast,“ segir Höskuldur, „en eigi skal það ef eg ræð því að eigi fer þér nær við Gunnar en Merði mundi við þig og skulum við heldur greiða féið báðir saman Gunnari.“

Síðan spurðu þeir bræður bændur hvað þeir vildu til leggja. Þeir sögðu allir að þeir vildu til leggja slíkt sem Hrútur vildi.

„Göngum þá,“ segir Höskuldur, „til búðar Gunnars og greiðum af höndum féið.“

Var þá sagt Gunnari. Hann gekk út í búðardyrnar.

Höskuldur mælti: „Nú er að taka við fénu.“

Gunnar mælti: „Greiðið nú þá því að eg er nú búinn við að taka.“

Þeir greiddu féið allt vel af hendi.

Þá mælti Höskuldur: „Njót þú sem þú hefir aflað.“

Gunnar kvað þá vísu þessa:


8.Auðs munu æskimeiðar

óttlaust fyrir því njóta

hægs að hvergi ljúgum

hjörþings til peninga.

Fer en vitnis varar

vér rjóðum þá fljóði

verr en oss og errinn,

álmur hraustur funa hjálma.


Hrútur svaraði: „Illu mun þér launað vera.“

„Fer það sem má,“ segir Gunnar.

Þeir Höskuldur gengu heim til búðar sinnar og var honum mikið í skapi og mælti til Hrúts: „Hvort mun Gunnari aldrei hefnast þessi ójafnaður?“

„Eigi mun það,“ segir Hrútur, „hefnast mun honum víst og mun oss verða í því engi hefnd né frami. En þó er það líkast að hann snúist til vorrar ættar um vinfengið.“

Hættu þeir þá talinu.

Gunnar sýndi Njáli féið.

Njáll mælti: „Vel hefir nú vegnað,“ sagði hann.

„Og hefir af þér til leitt,“ segir Gunnar.

Menn riðu heim nú af þinginu og hafði Gunnar hina mestu sæmd af málinu.

Gunnar færði féið allt Unni og vildi hann ekki af hafa en kveðst meira heimta þykjast eiga að henni síðan og hennar frændum en að öðrum mönnum. Hún kvað það svo vera.


Tilvísanir

Links