Njála, 025: Difference between revisions

From WikiSaga
Jump to navigationJump to search
(Created page with "{{Njála_TOC}} ==Chapter 25= '''XXX.''' ENSKA ==References== <references /> ==Kafli 25== Valgarður hét maður. Hann bjó að Hofi við Rangá. Hann var sonur Jörundar ...")
 
No edit summary
Line 2: Line 2:




==Chapter 25=
==Chapter 25==


'''XXX.'''
'''XXX.'''

Revision as of 09:21, 24 June 2014


Chapter 25

XXX.

ENSKA

References


Kafli 25

Valgarður hét maður. Hann bjó að Hofi við Rangá. Hann var sonur Jörundar goða, Rannvíssonar heimska, Valgarðssonar, Ævarssonar, Vémundarsonar orðlokars, Þórólfssonar vogunefs, Þrándarsonar hins gamla, Haraldssonar hilditannar, Hrærekssonar slönganbauga. Móðir Haralds hilditannar var Auður, dóttir Ívars víðfaðma, Hálfdanarsonar hins snjalla. Bróðir Valgarðs hins grá var Úlfur aurgoði er Oddaverjar eru frá komnir. Úlfur aurgoði var faðir Svarts, föður Loðmundar, föður Sigfúss, föður Sæmundar fróða, en frá Valgarði er kominn Kolbeinn ungi.

Þeir bræður, Úlfur aurgoði og Valgarður hinn grái, fóru að biðja Unnar og giftist hún Valgarði án ráði allra frænda sinna en það þótti Gunnari illa og Njáli og mörgum öðrum því að hann var maður grályndur og óvinsæll.

Þau gátu sér son er Mörður hét og er sá lengi við þessa sögu. Þá er hann var fullkominn að aldri var hann illa til frænda sinna og þó einna verst til Gunnars. Hann var slægur maður í skaplyndi en illgjarn í ráðum.

Nú skal nefna sonu Njáls. Skarphéðinn hét hinn elsti. Hann var mikill maður vexti og styrkur, vel vígur, syndur sem selur, manna fóthvatastur og skjótur og öruggur, gagnorður og skjótorður og skáld gott en þó löngum vel stilltur. Hann var jarpur á hár og sveipur í hárinu, eygður vel, fölleitur og skarpleitur, liður á nefi og lá hátt tanngarðurinn, munnljótur mjög og þó manna hermannlegastur.

Grímur hét annar sonur Njáls. Hann var fríður sýnum og hærður vel, dökkur á hár og fríðari sýnum en Skarphéðinn, mikill og sterkur.

Helgi hét hinn þriðji sonur Njáls. Hann var fríður sýnum og hærður vel. Hann var styrkur maður og vígur vel. Hann var vitur maður og stilltur vel. Allir voru þeir ókvongaðir synir Njáls.

Höskuldur hét hinn fjórði sonur Njáls. Hann var laungetinn. Móðir hans var Hróðný og var Höskuldsdóttir, systir Ingjalds frá Keldum.

Njáll spurði Skarphéðin ef hann vildi kvongast. Hann bað föður sinn ráða. Bað hann þá til handa honum Þórhildar, dóttur Rannvíss úr Þórólfsfelli, og átti hann því þar annað bú síðan. Skarphéðinn fékk Þórhildar og var þó vistum með föður sínum til enda. Grímur bað Ástríðar af Djúpárbakka og var hún honum ekkja og auðig mjög. Grímur fékk hennar og var þó með Njáli.


Tilvísanir

Links