Njála, 027

From WikiSaga
Revision as of 09:22, 24 June 2014 by Olga (talk | contribs) (Created page with "{{Njála_TOC}} ==Chapter 27== '''XXX.''' ENSKA ==References== <references /> ==Kafli 27== Litlu síðar riðu þeir út yfir Þjórsá og fóru þar til er þeir komu í ...")
(diff) ← Older revision | Latest revision (diff) | Newer revision → (diff)
Jump to navigationJump to search


Chapter 27

XXX.

ENSKA

References


Kafli 27

Litlu síðar riðu þeir út yfir Þjórsá og fóru þar til er þeir komu í Tungu. Ásgrímur var heima og tók við þeim vel og voru þar um nóttina. En um daginn gengu þeir á tal. Þá vakti Njáll til um bónorðið og bað Þórhöllu til handa Helga syni sínum. Ásgrímur svaraði því vel og sagði eigi þá menn vera er hann væri fúsari við að kaupa en þá. Þeir töluðu þá um málið og lauk svo að Ásgrímur festi Helga dóttur sína og var kveðið á brúðlaupsstefnu. Gunnar var að veislu þessi og margir aðrir hinir bestu menn.

Eftir veisluna bauð Njáll heim til fósturs Þórhalli syni Ásgríms og var hann með Njáli lengi síðan. Hann unni meira Njáli en föður sínum. Njáll kenndi honum lög svo að hann varð mestur lögmaður á Íslandi um þeirra daga.


Tilvísanir

Links