Njála, 031

From WikiSaga
Revision as of 09:35, 24 June 2014 by Olga (talk | contribs) (Created page with "{{Njála_TOC}} ==Chapter 31== '''XXX.''' ENSKA ==References== <references /> ==Kafli 31== Gunnar tók við honum og mælti við Kolskegg og Hallvarð: „Nú munum vér h...")
(diff) ← Older revision | Latest revision (diff) | Newer revision → (diff)
Jump to navigationJump to search


Chapter 31

XXX.

ENSKA

References


Kafli 31

Gunnar tók við honum og mælti við Kolskegg og Hallvarð: „Nú munum vér halda til Norðurlanda.“

Þeir létu vel yfir því.

Gunnar sigldi úr Austurvegi með fé miklu. Hann hafði tíu skip og hélt þeim til Heiðabæjar í Danmörk. Haraldur konungur Gormsson var þar á land upp. Honum var sagt til Gunnars og það með að engi mundi hans maki á Íslandi. Hann sendi mann til hans að bjóða honum til sín. Gunnar fór þegar á konungsfund. Konungur tók við honum vel og setti hann hið næsta sér. Þar var Gunnar hálfan mánuð. Konungur hafði það að gamni að hann lét Gunnar reyna ýmsar íþróttir við menn sína og voru þeir engir að né eina íþrótt hefði til jafns við hann.

Konungur mælti til Gunnars: „Svo líst mér sem óvíða muni þinn jafningi fást.“

Konungur bauð að fá Gunnari kvonfang og ríki mikið ef hann vildi þar staðfestast.

Gunnar þakkaði konungi boð sitt og mælti: „Fara vil eg fyrst til Íslands að finna vini mína og frændur.“

„Þá munt þú aldrei aftur koma til vor,“ segir konungur.

„Auðna mun því ráða, herra,“ segir Gunnar.

Gunnar gaf konungi langskip gott og annað fé mikið. Konungur gaf honum tignarklæði sín og glófa gullfjallaða og skarband, og gullknútar á, og hatt gerskan.

Gunnar fór norður til Hísingar. Ölvir tók við honum báðum höndum. Hann færði Ölvi skip sín og kallar það vera hlut hans. Ölvir tók við fénu og kvað Gunnar vera dreng góðan og bað hann vera þar nokkura hríð.

Hallvarður spurði Gunnar ef hann vildi finna Hákon jarl. Gunnar sagði sér það vera nærri skapi „því að nú er eg að nokkuru reyndur en þá var eg að öngu er þú baðst þess.“

Síðan fóru þeir norður til Þrándheims á fund Hákonar jarls og tók hann vel við Gunnari og bauð honum að vera með sér um veturinn. Hann þá það og virðist hann hverjum manni vel. Að jólum gaf jarl honum gullhring. Gunnar lagði hug á Bergljótu frændkonu jarls og fannst það oft á jarli að hann mundi hana hafa gifta honum ef Gunnar hefði nokkuð þess leitað.


Tilvísanir

Links