Njála, 032

From WikiSaga
Revision as of 09:35, 24 June 2014 by Olga (talk | contribs) (Created page with "{{Njála_TOC}} ==Chapter 32== '''TITLE.''' ENSKA ==References== <references /> ==Kafli 32== Um vorið spurði jarl Gunnar hvað hann vildi ráða sinna. Hann kvaðst vild...")
(diff) ← Older revision | Latest revision (diff) | Newer revision → (diff)
Jump to navigationJump to search


Chapter 32

TITLE.

ENSKA

References


Kafli 32

Um vorið spurði jarl Gunnar hvað hann vildi ráða sinna. Hann kvaðst vildu til Íslands.

Jarlinn kvað vera illa ært í landi „og mun vera lítil útsigling en þó skalt þú hafa mjöl og við í skipi þínu.“

Snemmendis bjó Gunnar skip sitt. Hallvarður fór út með þeim Kolskeggi.

Þeir komu út snemma sumars og tóku Arnarbælisós fyrir alþingi. Reið Gunnar heim frá skipi en fékk menn til að ryðja skipið. En er þeir komu heim urðu menn þeim fegnir. Þeir voru blíðir við heimamenn sína.

Gunnar spyr hvort Njáll sé heima. Honum var sagt að hann var heima. Lét hann þá taka hest sinn og riðu þeir bræður til Bergþórshvols. Njáll varð feginn komu þeirra og bað að þeir skyldu vera þar um nóttina og sagði Gunnar frá ferðum sínum.

Njáll sagði hann vera hinn mesta afreksmann „og ert þú mjög reyndur en þó munt þú meir síðar því að margur mun þig öfunda.“

„Við alla vildi eg gott eiga,“ segir Gunnar.

„Margt mun til verða,“ segir Njáll, „og munt þú jafnan eiga hendur þínar að verja.“

„Undir því væri þá,“ segir Gunnar, „að eg hefði málaefni góð.“

„Svo mun og vera,“ segir Njáll, „ef þú geldur eigi annarra.“

Njáll spurði Gunnar hvort hann mundi til þings ríða. Gunnar segir að hann mundi ríða og spyr hvort Njáll mundi ríða en hann kveðst eigi ríða mundi „og svo vildi eg að þú gerðir.“

Gunnar reið heim og gaf Njáli góðar gjafir og þakkaði honum fjárvarðveislu.

Kolskeggur fýsti hann mjög að ríða til þings, „mun þar vaxa sæmd þín við því að margur mun þar að þér víkja.“

„Lítt hefi eg það skap haft,“ segir Gunnar, „að hrósa mér en gott þykir mér að finna góða menn.“

Hallvarður var og þar kominn og bauð að ríða til þings með þeim.


Tilvísanir

Links