Njála, 042

From WikiSaga
Revision as of 09:37, 24 June 2014 by Olga (talk | contribs) (Created page with "{{Njála_TOC}} ==Chapter 42== '''TITLE.''' ENSKA ==References== <references /> ==Kafli 42== Sigmundur kom austan og þeir félagar. Hallgerður sagði þeim að Þórður...")
(diff) ← Older revision | Latest revision (diff) | Newer revision → (diff)
Jump to navigationJump to search


Chapter 42

TITLE.

ENSKA

References


Kafli 42

Sigmundur kom austan og þeir félagar. Hallgerður sagði þeim að Þórður var heima en hann skyldi þegar til þings ríða á fárra nátta fresti.

„Mun yður nú færi á við hann,“ segir hún, „en ef þetta ber undan náið þið honum eigi.“

Menn komu til Hlíðarenda frá Þórólfsfelli og sögðu Hallgerði að Þórður væri þar.

Hallgerður gekk til þeirra Þráins Sigfússonar og mælti til hans: „Nú er Þórður í Þórólfsfelli og er yður nú ráð að vega að honum er hann fer heim.“

„Það skulum vér nú gera,“ segir Sigmundur.

Gengu þeir þá út og tóku vopn sín og hesta og riðu á leið fyrir hann.

Sigmundur mælti til Þráins: „Nú skalt þú ekki að gerast því að oss mun eigi alla til þurfa.“

„Svo mun eg gera,“ segir hann.

Þá reið Þórður að þeim litlu síðar.

Sigmundur mælti til hans: „Gefst þú upp,“ segir hann, „því að nú skalt þú deyja.“

„Eigi skal það,“ segir Þórður, „gakk þú til einvígis við mig.“

„Eigi skal það,“ segir Sigmundur, „vér skulum þess njóta er vér erum fleiri. En eigi er kynlegt að Skarphéðinn sé hraustur að það er mælt að fjórðungi bregði til fósturs.“

„Að því mun þér verða,“ segir Þórður, „því að Skarphéðinn mun mín hefna.“

Síðan sækja þeir að honum og brýtur hann spjót fyrir hvorumtveggja þeirra. Svo varðist hann vel. Þá hjó Skjöldur af honum höndina og varðist hann þá með annarri nokkura stund þar til er Sigmundur lagði í gegnum hann. Þeir báru að honum torf og grjót.

Þráinn mælti: „Vér höfum illt verk unnið og munu synir Njáls illa kunna víginu þá er þeir spyrja.“

Þeir ríða heim og segja Hallgerði. Hún lét vel yfir víginu.

Rannveig mælti, móðir Gunnars: „Það er mælt að skamma stund verður hönd höggvi fegin enda mun svo hér. En þó mun Gunnar leysa þig af þessu máli. En ef Hallgerður kemur annarri flugu í munn þér þá verður það þinn bani.“

Hallgerður sendi mann til Bergþórshvols að segja vígið en annan sendi hún til þings að segja Gunnari vígið. Bergþóra kvaðst ekki mundu berja Hallgerði illyrðum um slíkt og kvað það öngva hefnd fyrir svo mikið mál.


Tilvísanir

Links