Njála, 044

From WikiSaga
Revision as of 09:37, 24 June 2014 by Olga (talk | contribs) (Created page with "{{Njála_TOC}} ==Chapter 44== '''TITLE.''' ENSKA ==References== <references /> ==Kafli 44== Nú ríða menn heim af þingi. Og er Gunnar kom heim mælti hann til Sigmunda...")
(diff) ← Older revision | Latest revision (diff) | Newer revision → (diff)
Jump to navigationJump to search


Chapter 44

TITLE.

ENSKA

References


Kafli 44

Nú ríða menn heim af þingi. Og er Gunnar kom heim mælti hann til Sigmundar: „Meiri ertu ógiftumaður en eg ætlaði og hefir þú til ills þína mennt. En þó hefi eg þig nú gert sáttan og skalt þú nú eigi láta annarri flugu koma í munn þér. Ert þú mér ekki skaplíkur. Þú ferð með spott og háð en það er ekki mitt skap. Kemur þú þér því vel við Hallgerði að þið eigið meir skap saman.“

Gunnar taldi á hann langa hríð. Hann svaraði honum vel og kvaðst meir hans ráðum skyldu fram fara þaðan af en þar til. Gunnar sagði það hlýða mundu.

Hélst vinátta með þeim Gunnari og Njáli þótt fátt væri meðal annars liðsins.

Sá atburður varð að farandi konur komu til Hlíðarenda frá Bergþórshvoli. Þær voru málgar og heldur illorðar. Hallgerður átti dyngju og sat hún þar oftlega í. Þar var Þorgerður dóttir hennar. Þar var Þráinn og Sigmundur og fjöldi kvenna. Gunnar var eigi þar né Kolskeggur. Farandkonur þessar gengu inn í dyngjuna. Hallgerður heilsaði þeim og lét gefa þeim rúm og spurði hvar þær voru um nóttina. Þær sögðu að Bergþórshvoli.

„Hvað hafðist Njáll að?“ segir hún.

„Stritaðist hann við að sitja,“ sögðu þær.

„Hvað gerðu synir Njáls?“ sagði hún. „Þeir þykjast nú helst menn.“

„Miklir eru þeir vexti en óreyndir eru þeir mjög,“ sögðu þær. „Skarphéðinn hvatti öxi, Grímur skefti spjót, Helgi hnauð hjalt á sverð, Höskuldur treysti mundriða í skildi.“

„Til stórræða nokkurra munu þeir ætla,“ segir Hallgerður.

„Eigi vitum við það,“ segja þær.

„Hvað gerðu húskarlar Njáls?“ segir hún.

„Eigi vissum við það hvað sumir gerðu. Einn ók skarni á hóla.“ 

„Hví mundi það sæta?“ segir hún.

„Það sagði hann að þar yrði taða betri en annars staðar,“ sögðu þær.

„Misvitur er Njáll,“ segir Hallgerður, „þar er hann kann til hversvetna ráð.“

„Hvað er í því?“ sögðu þær.

„Það mun eg til finna er satt er er hann ók eigi í skegg sér að hann væri sem aðrir karlmenn og köllum karl hinn skegglausa en sonu hans taðskegglinga og kveð þú um nokkuð, Sigmundur, og lát oss njóta þess er þú ert skáld.“

„Þess er eg albúinn“ og kvað vísur þessar:


12. Hvað skulu, hauka setra

Hildur, mundriða í skildi

trauðir tryggra ráða

taðskegglingar negla?

því að sviphnuggnir seggir,

svanteigs, megu eigi,

elda björk, þau er yrkjum

orð háðuleg forðast.


13. Karlinn spyri orða illra,

einsætt er það, greinir,

vomur nemur víst í tómi

vort raus, hinn skegglausi;

hoddveitir gefur heiti

helst gott af spotti,

ljóð sem eg trautt um trúða,

taðskegglingum, vegleg.


14. Gert er maklegast miklu

meins leitöndum heiti,

trauður rauf eg tryggðir, síðan

taðskegglingum neglist;

heiti karl en knýtum,

kanna eg oft hugi manna,

skjótt í skömmu máli,

skegglaus tali seggja.

„Gersemi ert þú,“ sagði Hallgerður, „hversu þú ert mér eftirlátur.“

Þá kom Gunnar að í því. Hann hafði staðið fyrir framan dyngjuna og heyrði öll orðtækin. Brá þeim mjög við er þau sáu hann inn ganga. Þögnuðu þá allir en áður hafði verið hlátur mikill.

Gunnar var reiður mjög og mælti til Sigmundar: „Heimskur maður ertu og óráðhollur. Þú hrópar sonu Njáls og sjálfan hann er þó er mest vert og slíkt sem þú hefir þeim áður gert og mun þetta vera þinn bani. En ef nokkur maður hermir þessi orð þá skal sá í brottu verða og hafa þó reiði mína.“

En svo var þeim öllum ótti mikill að honum að engi þorði þessi orð að herma. Síðan gekk hann í braut.

Farandkonurnar töluðu með sér að þær mundu taka laun af Bergþóru ef þær segðu henni þetta, fóru síðan ofan þangað og sögðu Bergþóru á laun ófregið.

Bergþóra mælti er menn sátu undir borðum: „Gjafir eru yður gefnar feðgum og verðið þér litlir drengir ef þér launið öngu.“

„Hversu eru gjafir þær?“ segir Skarphéðinn.

„Þér synir mínir áttuð eina gjöf allir saman. Þér eruð kallaðir taðskegglingar en bóndi minn karl hinn skegglausi.“

„Ekki höfum vér kvenna skap,“ segir Skarphéðinn, „að vér reiðumst við öllu.“

„Reiddist Gunnar fyrir yðra hönd,“ segir hún, „og þykir hann skapgóður. Og ef þér rekið eigi þessa réttar þá munuð þér öngrar skammar reka.“

„Gaman þykir kerlingunni að, móður vorri,“ segir Skarphéðinn og glotti en þó spratt honum sveiti í enni og komu rauðir flekkar í kinnur honum en því var ekki vant.

Grímur var hljóður og beit á vörinni. Helga brá ekki við. Höskuldur gekk fram með Bergþóru. Hún kom innar og geisaði mjög.

Njáll mælti: „Kemst þó að seint fari, húsfreyja. Og fer svo um mörg mál þótt menn hafi skapraun af að jafnan orkar tvímælis þótt hefnt sé.“

En um kveldið er Njáll var kominn í rekkju heyrði hann að öx kom við þilið og söng hátt í en lokrekkja var önnur og héngu þar á skildir og sér hann að þeir eru í brottu.

Hann mælti: „Hverjir hafa tekið ofan skjöldu vora?“

„Synir þínir gengu út með þá,“ segir Bergþóra.

Njáll gekk út þegar og öðrum megin hússins og sér að þeir stefna upp á hálsinn.

Hann mælti: „Hvert skal fara, Skarphéðinn?“

„Leita sauða þinna.“

Njáll segir: „Ekki munduð þér þá vopnaðir ef þér ætluðuð það og mun annað vera erindið.“

Skarphéðinn kvað þá vísu:


15. Eru umgerðis jarðar,

auðs varpandi, sauða

eisu einkar fúsir

oftveitandar leita.

Þeir hafa, seima særir,

smíðendur drafníða,

geystur um geira róstu.

grasbítar skyn lítið.


Og mælti síðan: „Laxa skulum vér veiða, faðir.“

„Vel væri þá ef svo væri að þá veiði bæri eigi undan.“

Þeir fóru en Njáll gekk til hvílu sinnar.

Hann mælti til Bergþóru: „Úti voru synir þínir með vopnum allir og munt þú nú hafa eggjað þá upp til nokkurs.“

„Allvel skal eg þakka þeim ef þeir segja mér víg Sigmundar.“


Tilvísanir

Links