Njála, 045

From WikiSaga
Revision as of 09:37, 24 June 2014 by Olga (talk | contribs) (Created page with "{{Njála_TOC}} ==Chapter 45== '''TITLE.''' ENSKA ==References== <references /> ==Kafli 45== Nú fara þeir Njálssynir upp til Fljótshlíðar og voru um nóttina við hl...")
(diff) ← Older revision | Latest revision (diff) | Newer revision → (diff)
Jump to navigationJump to search


Chapter 45

TITLE.

ENSKA

References


Kafli 45

Nú fara þeir Njálssynir upp til Fljótshlíðar og voru um nóttina við hlíðina og fóru nær Hlíðarenda er morgna tók. Þenna morgun hinn sama stóðu þeir Sigmundur og Skjöldur upp og ætluðu til stóðhrossa. Þeir höfðu beisl með sér og tóku hross í túni og riðu í braut. Þeir fundu hrossin milli lækja tveggja. Skarphéðinn sá þá því að Sigmundur var í litklæðum.

Skarphéðinn mælti: „Hvort sjáið þér nú rauðálfinn?“

Þeir litu til og kváðust sjá hann.

Skarphéðinn mælti: „Þú skalt gera að ekki, Höskuldur, því að þú munt oft sendur einn saman óvarlega. En eg ætla mér Sigmund. Þykir mér það karlmannlegt. En þeir Grímur og Helgi skulu vega að Skildi.“

Höskuldur settist niður er þeir gengu þar til er þeir komu að þeim.

Skarphéðinn mælti til Sigmundar: „Tak vopn þín og ver þig. Er það nú meiri nauðsyn en kveða flím um oss bræður.“

Sigmundur tók vopn sín en Skarphéðinn beið meðan. Skjöldur sneri móti þeim Helga og Grími og börðust þeir í ákafa. Sigmundur hafði hjálm og skjöld og gyrður sverði, spjót í hendi, snýr nú í móti Skarphéðni og leggur þegar spjóti til hans og kemur í skjöldinn. Skarphéðinn lýstur í sundur spjótskaftið og færir upp öxina og höggur til Sigmundar og klýfur skjöldinn ofan öðrum megin mundriða. Sigmundur brá sverðinu og hjó til Skarphéðins og kemur í skjöldinn svo að festi. Skarphéðinn snaraði svo fast skjöldinn að Sigmundur lét laust sverðið. Skarphéðinn höggur til Sigmundar með öxinni Rimmugýgi. Sigmundur var í pansara. Öxin kom á öxlina. Hann klauf ofan herðarblaðið og hnykkti að sér öxinni. Sigmundur féll á kné bæði.

Skarphéðinn mælti: „Laustu mér nú,“ segir Skarphéðinn, „en þó skaltu í móðurætt falla áður við skiljum.“

„Það er illa þá,“ segir Sigmundur.

Skarphéðinn laust á hjálminn og hjó Sigmund síðan banahögg. Grímur hjó fót af Skildi í ristarlið en Helgi lagði sverði í gegnum hann og fékk þegar bana.

Skarphéðinn sá smalamann Hallgerðar og hafði hann höggvið höfuð af Sigmundi. Hann seldi smalamanni höfuðið og bað hann færa Hallgerði, kvað hana kenna mundu „hvort það höfuð hefði ort níð um oss,“ og kvað vísu:


16. Höfuð þetta skaltu, hrotta

hljómstærandi, færa,

kom þú eldskerðir orðum

Álfs ferðar Hallgerði.

Hygg að þöll muni þekkja

Þynjar logs og skynja,

þýð hvort það hafi smíðað

þungt níð, boði skíða.


Smalamaður kastar höfðinu niður þegar þeir höfðu skilið því að hann þorði eigi meðan þeir sáu hann. Þeir fóru þar til er þeir fundu menn við Markarfljót og sögðu þeim tíðindin. Lýsti Skarphéðinn vígi Sigmundar á hendur sér en Grímur og Helgi vígi Skjaldar. Fóru þeir þá heim og sögðu Njáli tíðindin.

Hann sagði svo: „Njótið heilir handa. Hér skulu eigi sjálfdæmi fyrir koma að svo búnu.“

Nú er þar til máls að taka er smalamaður kemur heim til Hlíðarenda. Hann segir Hallgerði tíðindin.

„Fékk Skarphéðinn mér í hendur höfuð Sigmundar og bað mig færa þér en eg þorði það eigi,“ segir hann, „að gera því að eg vissi eigi hversu þér mundi það líka.“

„Það var illa er þú gerðir það eigi,“ segir hún. „Eg skyldi færa Gunnari og mundi hann þá hefna frænda síns ella sitja fyrir hvers manns ámæli.“

Síðan gekk hún til Gunnars og mælti: „Eg segi þér víg Sigmundar frænda þíns. Hefir Skarphéðinn vegið hann og vildi láta færa mér höfuðið.“

„Slíks var honum von,“ segir Gunnar, „því að illa gefast ill ráð og hefir hvorttveggja ykkað oft grálega gert til annars.“

Gekk þá Gunnar í braut. Hann lét ekki búa til vígsmálið og engan hlut að hafa. Hallgerður minnti oft á og sagði Sigmund vera óbættan. Gunnar gaf ekki gaum að því.

Nú liðu þrjú þing þau er menn ætluðu að hann mundi sækja málið. Þá kom eitt vandamál að hendi Gunnari það er hann vissi eigi hversu upp skyldi taka. Reið hann þá til fundar við Njál. Hann fagnar vel Gunnari.

Gunnar mælti til Njáls: „Heilræði er eg kominn að sækja að þér um eitt vandamál.“

„Maklegur ert þú þeirra,“ segir Njáll og réð honum ráðin.

Gunnar stóð þá upp og þakkaði honum.

Njáll mælti þá og tók til Gunnars: „Ærið lengi hefir Sigmundur frændi þinn verið óbættur.“

„Fyrir löngu var hann bættur,“ segir Gunnar, „en þó vil eg eigi drepa hendi við sóma mínum.“

Gunnar hafði aldrei illa mælt til Njálssona. Njáll vildi ekki annað en Gunnar gerði um málið. Hann gerði tvö hundruð silfurs en lét Skjöld vera ógildan. Þeir greiddu þegar allt féið. Gunnar sagði sætt þeirra upp á Þingskálaþingi þá er þar var mest fjölmenni og tjáði hversu vel þeim hafði farið og sagði þau hin illu orð er Sigmundi dró til höfuðsbana. Skyldi og engi herma þau eða vera ógildur sá er mælti. Þeir mæltu það báðir, Gunnar og Njáll, að engir hlutir skyldu þeir til verða að eigi semdu þeir sjálfir. Efndist það og vel síðan og voru þeir jafnan vinir.


Tilvísanir

Links