Njála, 046

From WikiSaga
Revision as of 09:38, 24 June 2014 by Olga (talk | contribs) (Created page with "{{Njála_TOC}} ==Chapter 46== '''TITLE.''' ENSKA ==References== <references /> ==Kafli 46== Gissur hét maður. Hann var Teitsson Ketilbjarnarsonar hins gamla frá Mosfel...")
(diff) ← Older revision | Latest revision (diff) | Newer revision → (diff)
Jump to navigationJump to search


Chapter 46

TITLE.

ENSKA

References


Kafli 46

Gissur hét maður. Hann var Teitsson Ketilbjarnarsonar hins gamla frá Mosfelli. Móðir Gissurar hét Ólöf. Hún var dóttir Böðvars hersis Víkinga-Kárasonar. Hans son var Ísleifur biskup. Móðir Teits hét Helga og var dóttir Þórðar skeggja Hrappssonar Bjarnarsonar bunu. Gissur hvíti bjó að Mosfelli og var höfðingi mikill.

Sá maður er nefndur til sögunnar er Geir goði hét. Móðir hans hét Þorkatla, dóttir Ketilbjarnar gamla frá Mosfelli. Geir bjó í Hlíð. Þeir Gissur fylgdust að hverju máli.

Í þenna tíma bjó Mörður Valgarðsson að Hofi á Rangárvöllum. Hann var slægur og illgjarn. Þá var Valgarður utan, faðir hans, en móðir hans önduð. Hann öfundaði mjög Gunnar frá Hlíðarenda. Hann var vel auðigur að fé og heldur óvinsæll.


Tilvísanir

Links