Njála, 058

From WikiSaga
Revision as of 09:40, 24 June 2014 by Olga (talk | contribs) (Created page with "{{Njála_TOC}} ==Chapter 58== '''TITLE.''' ENSKA ==References== <references /> ==Kafli 58== Egill hét maður. Hann var Kolsson Óttarssonar ballar er land nam meðal Sto...")
(diff) ← Older revision | Latest revision (diff) | Newer revision → (diff)
Jump to navigationJump to search


Chapter 58

TITLE.

ENSKA

References


Kafli 58

Egill hét maður. Hann var Kolsson Óttarssonar ballar er land nam meðal Stotalækjar og Reyðarvatns. Bróðir Egils var Önundur í Tröllaskógi, faðir Halla hins sterka er var að vígi Holta-Þóris með sonum Ketils hins sléttmála. Egill bjó í Sandgili. Synir hans voru þeir Kolur og Óttar og Haukur. Móðir þeirra hét Steinvör systir Starkaðar. Synir Egils voru miklir menn og kappsamir og hinir mestu ójafnaðarmenn. Þeir voru að einu máli og synir Starkaðar. Systir þeirra var Guðrún náttsól og var kvenna kurteisust.

Egill hafði tekið við Austmönnum tveimur. Hét annar Þórir en annar Þorgrímur. Þeir voru frumferlar út hingað, vinsælir og auðgir. Þeir voru vígir vel og fræknir um allt.

Starkaður átti hest góðan, rauðan að lit, og þótti sem engi hestur mundi hafa við þeim í vígi.

Einhverju sinni var það að þeir bræður úr Sandgili voru undir Þríhyrningi. Þeir höfðu viðurmæli mikið um alla bændur í Fljótshlíð og þar kom að þeir töluðu hvort nokkur mundi vilja etja hestum við þá. En þeir menn voru að mæltu það til sóma þeim og eftirlætis að bæði mundi vera að engi mundi þora enda mundi engi eiga þvílíkan hest.

Þá svaraði Hildigunnur: „Veit eg þann mann er þora mun að etja við yður.“

„Nefndu þann,“ segja þeir.

„Gunnar á hest brúnan og mun hann þora að etja við yður og við alla aðra.“

„Svo þykir yður konum sem engi muni vera hans maki. En þótt óvirðilega hafi farið fyrir honum Geir goði eða Gissur hvíti þá er eigi ráðið að oss fari svo.“

„Yður mun first fara,“ segir hún og varð þeim af hin mesta deila.

Starkaður mælti: „Á Gunnar vil eg að þér leitið síst því að erfitt mun yður verða að ganga í móti giftu hans.“

„Leyfa muntu oss að vér bjóðum honum hestaat?“

„Leyfa mun eg ef þér prettið hann í öngu.“

Þeir kváðust svo gera mundu.

Riðu þeir nú til Hlíðarenda. Gunnar var heima og gekk út. Kolskeggur og Hjörtur gengu út með honum og fögnuðu þeim vel og spurðu hvert þeir ætluðu að fara.

„Eigi lengra,“ segja þeir. „Oss er sagt er þú eigir hest góðan og viljum vér bjóða þér hestaat.“

„Litlar sögur mega ganga frá hesti mínum. Hann er ungur og óreyndur að öllu.“

„Kost muntu láta að etja,“ segja þeir, „og gat þess til Hildigunnur að þú mundir góður af hestinum.“

„Hví töluðuð þér um það?“ segir Gunnar.

„Þeir menn voru,“ segja þeir, „er það mæltu að engi mundi þora að etja við vorn hest.“

„Þora mun eg að etja,“ segir Gunnar, „en grálega þykir mér þetta mælt.“

„Skulum vér til þess ætla þá?“ segja þeir.

„Þá mun yður för yður þykja best ef þér ráðið þessu. En þó vil eg þess beiða yður að vér etjum svo hestunum að vér gerum öðrum gaman en oss verði engi vandræði og þér gerið mér enga skömm. En ef þér gerið til mín sem til annarra þá er eigi ráðið nema eg sveigi það að yður að hart mun þykja undir að búa. Mun eg þar eftir gera sem þér gerið fyrir.“

Ríða þeir þá heim. Spurði Starkaður að hversu þeim hefði farist. Þeir sögðu að Gunnar gerði góða ferð þeirra.

„Hann hét að etja hesti sínum og kváðum vér á nær það hestavíg skyldi vera. Fannst það á í öllu að honum þótti sig skorta við oss og baðst hann undan.“

„Það mun á finnast,“ segir Hildigunnur, „að Gunnar er seinþreyttur til vandræða en harðdrægur ef hann má eigi undan komast.“

Gunnar reið að finna Njál og sagði honum hestaatið.

„Þú munt hafa meira hlut,“ sagði Njáll, „en þó mun hér hljótast af margs manns bani.“

„Mun nokkuð hér minn bani af hljótast?“ segir Gunnar.

„Ekki mun það af þessu,“ segir Njáll, „en þó munu þeir minnast á fornan fjandskap og nýjan er að þér fara og muntu ekki annað mega en hrökkva við.“

Gunnar reið þá heim.


Tilvísanir

Links