Njála, 070

From WikiSaga
Revision as of 15:12, 24 June 2014 by Olga (talk | contribs) (Created page with "{{Njála_TOC}} ==Chapter 70== '''TITLE.''' ENSKA ==References== <references /> ==Kafli 70== Gunnar þakkaði honum tillögur sínar. Njáll reið undir Þríhyrning og sa...")
(diff) ← Older revision | Latest revision (diff) | Newer revision → (diff)
Jump to navigationJump to search


Chapter 70

TITLE.

ENSKA

References


Kafli 70

Gunnar þakkaði honum tillögur sínar. Njáll reið undir Þríhyrning og sagði það þeim nöfnum að Gunnar mundi ekki eyða flokkum fyrr en úr sliti með þeim. Þeir buðu boð fyrir sig og voru óttafullir og báðu Njál fara með sáttarboðum. Njáll kvaðst það því einu fara mundu er eigi fylgdu svik. Þeir báðu hann vera í gerðinni og kváðust það halda mundu er hann gerði. Njáll kvaðst eigi gera mundu nema á þingi og væru við hinir bestu menn. Þeir játuðu því. Gekk þá Njáll í meðal svo að hvorir handsöluðu öðrum grið og sætt. Skyldi Njáll gera um og nefna til þá er hann vildi.

Litlu síðar fundu þeir Mörð Valgarðsson. Mörður taldi á þá mjög er þeir höfðu lagið mál undir Njál þar sem hann var vinur Gunnars mikill, kvað þeim það illa duga mundu.

Ríða menn nú til alþingis að vanda. Eru nú hvorirtveggju á þingi. Njáll kvaddi sér hljóðs, spurði alla hina bestu menn er þar voru komnir hvert mál þeim þætti Gunnar eiga á þeim fyrir fjörráðin. Þeir sögðu að þeim þótti slíkur maður mikinn rétt á sér eiga. Njáll svaraði hvort hann ætti á öllum þeim eða ættu fyrirmenn að svara fyrir alla menn málinu. Þeir segja að mest mundi á fyrirmönnum en þó á öllum mikið.

„Það munu margir mæla,“ kvað Mörður, „að eigi hafi um sakleysi verið þar sem Gunnar rauf sætt við þá nafna.“

„Eigi er það sættarrof,“ segir Njáll, „að hver hafi lög við annan því að með lögum skal land vort byggja en með ólögum eyða.“

Sagði Njáll þeim þá að Gunnar hafði boðið land fyrir Móeiðarhvol eða annað fé. Þóttust þeir þá nafnar falsaðir af Merði og töldu á hann mjög og kváðust af honum hljóta þetta fégjald. Njáll nefndi tólf manna dóm á málinu. Galt þá hundrað silfurs hver er til hafði farið en tvö hundruð hvor þeirra nafna. Tók Njáll við þessu fé og varðveitti en hvorir veittu öðrum tryggðir og grið og mælti Njáll fyrir.

Reið Gunnar þá af þingi vestur til Dala og tóku allir honum fegins hendi.

En að skilnaði mælti Ólafur: „Eg vil gefa þér þrjá gripi, gullhring og skikkju er átt hefir Mýrkjartan Írakonungur og hund er mér var gefinn á Írlandi. Hann er mikill og eigi verri til fylgdar en röskur maður. Það fylgir og að hann hefir mannsvit. Hann mun og geyja að hverjum manni þeim er hann veit að óvin þinn er en aldrei að vinum þínum. Sér hann þó á hverjum manni hvort til þín er vel eða illa. Hann mun og líf á leggja að vera þér trúr. Þessi hundur heitir Sámur.“

Síðan mælti hann við hundinn: „Nú skaltu Gunnari fylgja og vera honum slíkur sem þú mátt.“

Hundurinn gekk þegar að Gunnari og lagðist niður fyrir fætur honum.

Ólafur bað Gunnar vera varan um sig og kvað hann eiga marga öfundarmenn „þar er þú þykir ágætastur maður nú um allt land.“

Gunnar þakkaði honum gjafir og heilræði og ríður heim. Situr Gunnar nú heima nokkura hríð og er kyrrt.


Tilvísanir

Links