Njála, 071

From WikiSaga
Revision as of 15:12, 24 June 2014 by Olga (talk | contribs) (Created page with "{{Njála_TOC}} ==Chapter 71== '''TITLE.''' ENSKA ==References== <references /> ==Kafli 71== Litlu síðar finnast þeir nafnar og Mörður. Verða þeir eigi ásáttir. ...")
(diff) ← Older revision | Latest revision (diff) | Newer revision → (diff)
Jump to navigationJump to search


Chapter 71

TITLE.

ENSKA

References


Kafli 71

Litlu síðar finnast þeir nafnar og Mörður. Verða þeir eigi ásáttir. Þóttust þeir láta fé mikið fyrir Merði en hafa ekki í móti og báðu hann setja aðra ráðagerð þá er Gunnari væri til meins.

Mörður kvað svo vera skyldu. „Er það nú ráð mitt að Þorgeir Otkelsson fífli Ormhildi frændkonu Gunnars en Gunnar mun af því láta vaxa óþokka við þig. Skal eg þá ljósta upp þeim kvitt að Gunnar muni eigi svo hafa við þig gert. Skuluð þið þá nokkuru síðar hafa aðför við Gunnar en þó skuluð þið Gunnar eigi heim sækja því að það má eigi ætla meðan hundurinn lifir.“

Sömdu þeir nú þessa ráðagerð með sér að sjá skyldi fram koma.

Nú líður sumarið. Þorgeir venur komur sínar til Ormhildar. Gunnari þótti það illa og gerðist óþokki mikill með þeim. Fór svo fram um veturinn. Nú kemur sumar og verða þá enn oftlega fundir þeirra á laun.

Þeir finnast jafnan Þorgeir undan Þríhyrningi og Mörður og ráða aðför við Gunnar þá er hann riði ofan í Eyjar að sjá verk húskarla sinna.

Eitt sinn varð Mörður var við er Gunnar reið ofan í Eyjar og sendi mann undir Þríhyrning að segja Þorgeiri að þá mundi vænast til að leita að fara að Gunnari. Þeir brugðu við skjótt og fara þaðan tólf saman. En er þeir komu í Kirkjubæ þá voru þar fyrir þrettán menn. Réðu þeir þá það að fara ofan til Rangár og sitja þar fyrir Gunnari.

En er Gunnar reið neðan úr Eyjum reið Kolskeggur með honum. Gunnar hafði boga sinn og örvar og atgeirinn. Kolskeggur hafði saxið og alvæpni.


Tilvísanir

Links