Njála, 076

From WikiSaga
Revision as of 15:13, 24 June 2014 by Olga (talk | contribs) (Created page with "{{Njála_TOC}} ==Chapter 76== '''TITLE.''' ENSKA ==References== <references /> ==Kafli 76== Um haustið sendi Mörður Valgarðsson orð að Gunnar mundi vera einn heima ...")
(diff) ← Older revision | Latest revision (diff) | Newer revision → (diff)
Jump to navigationJump to search


Chapter 76

TITLE.

ENSKA

References


Kafli 76

Um haustið sendi Mörður Valgarðsson orð að Gunnar mundi vera einn heima en lið allt mundi vera niðri í Eyjum að lúka heyverkum. Riðu þeir Gissur hvíti og Geir goði austur yfir ár þegar þeir spurðu það og austur yfir sanda til Hofs. Þá sendu þeir orð Starkaði undir Þríhyrningi. Og fundust þeir þar allir er að Gunnari skyldu fara og réðu hversu að skyldi fara.

Mörður sagði að þeir mundu eigi koma á óvart Gunnari nema þeir tækju bónda af næsta bæ er Þorkell hét og létu hann fara nauðgan með sér að taka hundinn Sám og færi hann heim einn á bæinn.

Fóru þeir síðan austur til Hlíðarenda en sendu eftir Þorkatli. Þeir tóku hann höndum og gerðu honum tvo kosti, að þeir mundu drepa hann, ella skyldi hann taka hundinn. En hann kjöri heldur að leysa líf sitt og fór með þeim. Traðir voru fyrir norðan garðana að Hlíðarenda og námu þeir þar staðar með flokkinn. Bóndi Þorkell gekk heim á bæinn og lá rakkinn á húsum uppi og teygir hann rakkann á braut með sér í geilar nokkurar. Í því sér hundurinn að þar eru menn fyrir og hleypur á hann Þorkel upp og greip nárann. Önundur úr Tröllaskógi hjó með öxi í höfuð hundinum svo er allt kom í heilann. Hundurinn kvað við hátt svo að það þótti þeim með ódæmum miklum vera.


Tilvísanir

Links