Njála, 089

From WikiSaga
Revision as of 15:15, 24 June 2014 by Olga (talk | contribs) (Created page with "{{Njála_TOC}} ==Chapter 89== '''TITLE.''' ENSKA ==References== <references /> ==Kafli 89== Nú er þar til máls að taka er Hákon jarl missti Þráins að hann mælti ...")
(diff) ← Older revision | Latest revision (diff) | Newer revision → (diff)
Jump to navigationJump to search


Chapter 89

TITLE.

ENSKA

References


Kafli 89

Nú er þar til máls að taka er Hákon jarl missti Þráins að hann mælti við Svein son sinn: „Tökum við langskip fjögur og förum að Njálssonum og drepum þá því að þeir munu vitað hafa með Þráni.“

„Það er eigi gott ráð,“ segir Sveinn, „að snúa sökinni á óvalda menn en láta þann undan setja er sekur er.“

„Eg skal þessu ráða,“ segir jarl.

Halda þeir nú eftir Njálssonum og leita þeirra og finna þá undir eyju einni.

Grímur sá fyrr skip jarlsins og mælti til Helga: „Herskip fara hér og kenni eg að hér er jarl og mun hann oss engan frið bjóða.“

„Það er mælt að sá sé hver vaskur er sig ver við hvern sem hann á. Skulum vér og verja oss.“

Allir báðu hann fyrir sjá. Tóku þeir þá vopn sín.

Jarl kemur nú að og kallaði á þá og bað þá upp gefast. Helgi svarar að þeir mundu verjast meðan þeir mættu. Jarl bauð öllum grið, þeim er eigi vildu verja hann, en svo var Helgi vinsæll að allir vildu deyja með honum. Jarl sækir að og hans menn en þeir verjast vel og voru þeir Njálssynir þar jafnan sem mest var raunin. Jarl bauð oft grið en þeir svöruðu hinu sama og sögðust aldrei mundu upp gefast. Þá sótti að þeim fast Áslákur úr Langeyju og komst upp á skipið þremur sinnum.

Þá mælti Grímur: „Þú sækir fast að og væri vel að þú hefðir erindi.“

Grímur þreif upp spjót og skaut undir kverkina og hafði Áslákur þegar bana. Litlu síðar vó Helgi Egil merkismann jarls. Þá sótti að Sveinn Hákonarson og lét bera að þeim skjöldu og urðu þeir handteknir.

Jarl vildi láta þegar drepa þá en Sveinn kvað það eigi skyldu og sagði að væri nótt.

Þá mælti jarl: „Drepið þá á morgun en bindið þá rammlega í nótt.“

„Svo mun vera verða,“ segir Sveinn, „en eigi hefi eg vaskari menn fyrir fundið en þessa og er það hinn mesti mannskaði að taka þá af lífi.“

Jarl mælti: „Þeir hafa drepið tvo eina vöskustu vora menn og skal fyrir það drepa þá.“

„Menn voru þeir að vaskari,“ segir Sveinn, „en þó mun þetta gera verða sem þú vilt.“

Voru þeir bundnir og fjötraðir.

Eftir það sofnaði jarl. En þá er hann var sofnaður mælti Grímur til Helga: „Braut vildi eg komast ef eg mætti.“

„Leitum við nokkurra bragða þá,“ segir Helgi.

Grímur sér að þar liggur öx ein og horfði upp eggin. Grímur skreið þangað til og fær skorið af sér bogastrenginn við öxinni en þó fékk hann sár mikil á höndunum. Þá leysti hann Helga. Eftir það skreiddust þeir fyrir borð og komust á land svo að þeir Hákon urðu eigi varir við. Þeir brutu af sér fjötrana og gengu annan veg á eyna. Tók þá að morgna. Þeir fundu þar skip og kenndu að þar var kominn Kári Sölmundarson. Fóru þeir þegar á fund hans og sögðu honum hrakning sína og sýndu honum sár sín og kváðu þá jarl mundu í svefni.

Kári mælti: „Illa verður slíkt að þér skuluð taka hrakning fyrir vonda menn eða hvað er nú gert að skapi ykkru?“

„Fara að jarli og drepa hann,“ sögðu þeir.

„Ekki mun þess auðið verða,“ segir Kári, „en ekki skortir ykkur áhuga. En þó skulum vér vita hvort hann er þar nú.“

Síðan fóru þeir þangað og var jarl þá í brottu.

Þá fór Kári inn til Hlaða á fund jarls og færði honum skattinn.

Jarl mælti: „Hefir þú tekið Njálssonu til þín?“

„Svo er víst,“ segir Kári.

„Vilt þú selja mér fram Njálssonu?“

„Það vil eg eigi,“ sagði Kári.

„Vilt þú sverja þess að þú vildir eigi að mér fara eftir?“ segir jarl.

Þá mælti Eiríkur jarlsson: „Ekki er slíks að leita. Hefir Kári jafnan verið vinur vor. Og skyldi eigi svo farið hafa ef eg hefði við verið. Njálssynir skyldu hafa haldið öllu en hinir skyldu haft hafa refsing er til höfðu gert. Þætti mér nú sæmilegra að gefa Njálssonum góðar gjafir fyrir hrakningar þær er þeir höfðu og sárafar.“

Jarlinn mælti: „Svo mundi vera víst,“ segir hann, „en eigi veit eg hvort þeir vilja taka sættir.“

Þá mælti jarl að Kári skyldi leita við Njálssonu um sættir. Síðan ræddi Kári við Helga hvort hann vildi taka sæmdir af jarli.

Helgi sagði: „Taka vil eg af syni hans Eiríki en ekki vil eg eiga við jarl.“

Þá segir Kári Eiríki svör þeirra.

„Svo skal vera,“ segir Eiríkur, „að hann skal af mér taka sæmdina ef honum þykir það betra og segið þeim það að eg býð þeim til mín og skal faðir minn þeim ekki mein gera.“

Þetta þágu þeir og fóru til Eiríks og voru með honum þar til er Kári var búinn vestur að sigla. Þá gerði Eiríkur Kára veislu og gaf honum gjafir og svo Njálssonum.

Síðan fór Kári vestur um haf á fund Sigurðar jarls og tók hann við þeim allvel og voru með jarli um veturinn.

En um vorið bað Kári þá Njálssonu að þeir færu í hernað með honum en Grímur kvaðst það mundu gera ef hann vildi fara með honum út til Íslands. Kári hét því. Fóru þeir þá með honum í hernað. Þeir herjuðu suður um Öngulseyjar og allar Suðureyjar. Þá héldu þeir til Saltíris og gengu þar upp og börðust við landsmenn og fengu til fjár mikils og fóru til skipa. Þaðan fóru þeir suður til Bretlands og herjuðu þar. Þá héldu þeir til Manar. Þar mættu þeir Guðröði konungi úr Mani og börðust þeir við hann og höfðu sigur og drápu Dungal son konungs. Þar tóku þeir fé mikið. Þaðan héldu þeir norður til Kolu og fundu þar Gilla jarl og tók hann við þeim vel og dvöldust með honum nokkura hríð. Jarl fór með þeim til Orkneyja á fund Sigurðar jarls. En um vorið gifti Sigurður jarl Gilla jarli Nereiði systur sína. Fór hann þá í Suðureyjar.


Tilvísanir

Links