Njála, 090

From WikiSaga
Revision as of 15:16, 24 June 2014 by Olga (talk | contribs) (Created page with "{{Njála_TOC}} ==Chapter 90== '''TITLE.''' ENSKA ==References== <references /> ==Kafli 90== Það sumar bjuggust þeir Kári og Njálssynir til Íslands. Og þá er þei...")
(diff) ← Older revision | Latest revision (diff) | Newer revision → (diff)
Jump to navigationJump to search


Chapter 90

TITLE.

ENSKA

References


Kafli 90

Það sumar bjuggust þeir Kári og Njálssynir til Íslands. Og þá er þeir voru albúnir gengu þeir á fund jarls. Jarl gaf þeim góðar gjafir og skildu þeir með mikilli vináttu.

Láta þeir nú í haf. Þeir hafa útivistir skammar og gaf þeim vel byri og komu við Eyrar. Þeir fengu sér hesta og ríða frá skipi og riðu til Bergþórshvols. En er þeir komu heim urðu allir menn þeim fegnir. Þeir fluttu heim fé sitt og réðu skipi til hlunns.

Þar var Kári þann vetur með Njáli.

En um vorið bað Kári Helgu dóttur Njáls og fluttu þeir Grímur og Helgi með honum og lauk svo að hún var föstnuð Kára og var ákveðin brúðlaupsstefna og var boðið hálfum mánuði fyrir mitt sumar og voru þau þann vetur með Njáli. Þá keypti Kári land að Dyrhólmum austur í Mýdal og gerði þar bú. Þau fengu þar fyrir ráðamann en þau voru með Njáli jafnan.


Tilvísanir

Links