Njála, 091: Difference between revisions

From WikiSaga
Jump to navigationJump to search
(Created page with "{{Njála_TOC}} ==Chapter 6== '''TITLE.''' ENSKA ==References== <references /> ==Kafli 6== Hrappur átti bú á Hrappstöðum en þó var að Grjótá jafnan og þótti ha...")
 
No edit summary
Line 2: Line 2:




==Chapter 6==
==Chapter 91==


'''TITLE.'''
'''TITLE.'''
Line 12: Line 12:
<references />
<references />


==Kafli 6==
==Kafli 91==


Hrappur átti bú á Hrappstöðum en þó var að Grjótá jafnan og þótti hann þar öllu spilla. Þráinn var vel til hans.  
Hrappur átti bú á Hrappstöðum en þó var að Grjótá jafnan og þótti hann þar öllu spilla. Þráinn var vel til hans.  

Revision as of 15:17, 24 June 2014


Chapter 91

TITLE.

ENSKA

References


Kafli 91

Hrappur átti bú á Hrappstöðum en þó var að Grjótá jafnan og þótti hann þar öllu spilla. Þráinn var vel til hans.

Einhverju sinni var það þá er Ketill úr Mörk var að Bergþórshvoli, þá sögðu Njálssynir frá hrakningum sínum og kváðust mikið eiga að Þráni Sigfússyni nær sem þeir töluðu til. Njáll sagði að það væri best að Ketill tali til við bróður sinn Þráin.

Hann hét því. Gáfu þeir Katli tómstund til að tala við Þráin.

Litlu síðar mæltu þeir til við Ketil en hann kveðst fátt mundu herma af orðum þeirra „því að það fannst á að Þráni þótti eg mikils virða mágsemd við yður.“

Síðan hættu þeir talinu og þóttust þeir sjá að erfiðlega horfði og spurðu föður sinn ráðs hversu með skyldi fara. Þeir kváðust eigi una að svo búið stæði.

Njáll svaraði: „Eigi er slíkt svo óvant. Það mun þykja um sakleysi ef þeir eru drepnir og er það mitt ráð að skjóta að sem flestum um að tala við þá, að sem flestum verði heyrinkunnigt ef þeir svara illa. Þá skal Kári um tala því að hann er skapdeildarmaður. Mun þá vaxa óþokki með yður því að þeir munu hlaða illyrðum saman er menn eiga hlut að. Þeir eru menn heimskir. Það kann og vera að mælt sé að synir mínir séu seinir til aðgerða og skuluð þér það þola um stundarsakir því að allt orkar tvímælis þá er gert er. En svo fremi skuluð þér orði á koma er þér ætlið nokkuð að að gera ef yðvar er illa leitað. En ef þér hefðuð við mig um ráðið í fyrstu þá mundi aldrei orði á hafa verið komið og mundi yður þá engi svívirðing að verða. En nú hafið þér af hina mestu raun og mun það þó svo aukanda fara um yðra svívirðing að þér munuð ekki fá að gert fyrr en þér leggið vandræði á yður og vegið með vopnum og er því langa nót að að draga.“

Eftir það hættu þeir talinu og varð hér margs manns umræða á.

Einhverju sinni var það að þeir ræddu að Kári mundi fara til Grjótár. Kára kvaðst önnur ferð þykja betri en kvaðst þó mundu fara ef þetta væru ráð Njáls. Síðan fer Kári til fundar við Þráin. Tala þeir þá um málið og þykir þeim eigi einn veg báðum. Kári kemur heim og spyrja þeir Njálssynir Kára hversu farið hefir með þeim.

Kári kvaðst ekki herma mundu orðin „og er meiri von að mælt sé slíkt svo að þér heyrið.“

Þráinn hafði fimmtán karla vígja á bæ sínum og riðu átta með honum hvert er hann fór. Þráinn var skrautmenni mikið og reið jafnan í blárri kápu og hafði gylltan hjálm og spjótið Jarlsnaut í hendi og fagran skjöld og sverði gyrður. Með honum var jafnan í för Gunnar Lambason og Lambi Sigurðarson og Grani son Gunnars frá Hlíðarenda. Víga-Hrappur gekk honum þó næst jafnan. Loðinn hét og heimamaður hans. Hann var í ferðum með Þráni. Tjörvi hét bróðir Loðins er enn var í ferðum með Þráni. Þeir lögðu verst til þeirra Njálssona Hrappur og Grani og ollu mest er þeim var engi sætt boðin.

Njálssynir ræddu oft við Kára að hann mundi fara með þeim og það varð um síðir og sagði hann að það væri vel að þeir heyrðu svör Þráins. Bjuggust þeir þá fjórir Njálssynir og Kári hinn fimmti. Þeir fara til Grjótár. Þar var anddyri breitt og máttu margir menn standa jafnfram.

Kona ein var úti og sá ferð þeirra og segir Þráni. Hann bað menn ganga í anddyrið og taka vopn sín. Þeir gerðu svo. Stóð Þráinn í miðjum dyrum en þeir stóðu til sinnar handar hvor Víga-Hrappur og Grani Gunnarsson, þá þar næst Gunnar Lambason, þá Loðinn og Tjörvi, þá Lambi Sigurðarson, þá hver að hendi því að karlar voru allir heima.

Þeir Skarphéðinn ganga að neðan og gekk hann fyrstur, þá Kári, þá Höskuldur, þá Grímur, þá Helgi. En er þeir komu að neðan þá féllust þeim allar kveðjur er fyrir voru.

Skarphéðinn mælti: „Allir séum vér velkomnir.“

Hallgerður stóð í anddyrinu og hafði talað hljótt við Hrapp. Hún mælti: „Það mun engi mæla sá er fyrir er að þér séuð velkomnir.“

Skarphéðinn kvað vísu:


27. Auk munu, elda síka,

orð þín mega, skorða,

gjarn seð eg úlf og örnu,

ekki þessum rekkum;

hornkerling ert, Hernar

hrings víðs freka skíða

Baldur semur Óðins öldu,

útigangs eða púta.


Skarphéðinn mælti: „Ekki munu mega orð þín því að þú ert annaðhvort hornkerling eða púta.“

„Goldin skulu þér verða þessi orð áður þú ferð heim.“

Helgi mælti: „Þig er eg kominn að finna, Þráinn, ef þú vilt gera mér sæmd nokkura fyrir hrakningar þær er eg hlaut í Noregi fyrir þínar sakir.“

Þráinn mælti: „Aldrei vissi eg að þið bræður munduð gera drengskap ykkarn til fjár eða hversu lengi skal fjárbón sjá yfir standa?“

„Það munu margir mæla,“ segir Helgi, „að þú ættir að bjóða sættina þar til líf þitt lá við.“

Þá mælti Hrappur: „Þar gerði nú gæfumuninn er sá hlaut skellinn er skyldi og dró yður undir hrakningina en oss undan.“

„Lítil var það gæfa,“ segir Helgi, „að bregða trúnaði við jarl en taka þig við.“

„Þykist þú eigi að mér bótina eiga?“ segir Hrappur. „Eg mun bæta þér því sem mér þykir maklegt.“

„Þau ein skipti munum við eiga,“ segir Helgi, „að þér mun ekki betur gegna.“

Skarphéðinn mælti: „Skiptið ekki orðum við Hrapp en gjaldið honum rauðan belg fyrir grán.“

Hrappur mælti: „Þegi þú, Skarphéðinn, ekki skal eg spara að bera mína öxi að höfði þér.“

„Reynt mun slíkt verða,“ segir Skarphéðinn, „hver grjóti hleður að höfði öðrum.“

„Farið heim, taðskegglingar,“ segir Hallgerður, „og munum vér yður svo jafnan kalla héðan í frá en föður yðvarn karl hinn skegglausa.“

Þeir fóru eigi fyrr heim en allir urðu sekir þessa orða, þeir er fyrir voru, nema Þráinn. Hann þekkti menn af orðum þessum.

Þeir fóru í braut Njálssynir og fóru þar til er þeir komu heim. Þeir sögðu föður sínum.

„Nefnduð þér nokkura votta að orðunum?“ segir Njáll.

„Enga,“ sagði Skarphéðinn, „vér ætlum ekki að sækja þetta nema á vopnaþingi.“

„Það mun engi nú ætla,“ segir Bergþóra, „að þér þorið vopn að hefja.“

„Hafðu lítið við, húsfreyja,“ segir Kári, „að eggja sonu þína því að þeir munu þó ærið framgjarnir.“

Eftir það tala þeir lengi hljótt allir feðgar og Kári.

Tilvísanir

Links