Njála, 095

From WikiSaga
Revision as of 15:19, 24 June 2014 by Olga (talk | contribs) (Created page with "{{Njála_TOC}} ==Chapter 95== '''TITLE.''' ENSKA ==References== <references /> ==Kafli 95== Maður er nefndur Flosi. Hann var sonur Þórðar Freysgoða, Össurarsonar, ...")
(diff) ← Older revision | Latest revision (diff) | Newer revision → (diff)
Jump to navigationJump to search


Chapter 95

TITLE.

ENSKA

References


Kafli 95

Maður er nefndur Flosi. Hann var sonur Þórðar Freysgoða, Össurarsonar, Ásbjarnarsonar, Heyjangurs-Bjarnarsonar, Helgasonar, Bjarnarsonar bunu. Móðir Flosa var Ingunn dóttir Þóris á Espihóli, Hámundarsonar heljarskinns, Hjörssonar, Hálfssonar þess er réð fyrir Hálfsrekkum, Hjörleifssonar hins kvensama. Móðir Þóris var Ingunn dóttir Helga magra er nam Eyjafjörð. Flosi átti Steinvöru dóttur Halls á Síðu. Hún var laungetin og hét Sölvör móðir hennar, dóttir Herjólfs hvíta.

Flosi bjó að Svínafelli og var höfðingi mikill. Hann var mikill vexti og styrkur, manna kappsamastur.

Bróðir hans hét Starkaður. Hann var eigi sammæður við Flosa. Móðir Starkaðar var Þraslaug dóttir Þorsteins tittlings Geirleifssonar en móðir Þraslaugar var Unnur; hún var dóttir Eyvindar karpa landnámamanns og systir Móðólfs hins spaka. Bræður Flosa voru þeir Þorgeir og Steinn, Kolbeinn og Egill.

Hildigunnur hét dóttir Starkaðar bróður Flosa. Hún var skörungur mikill og kvenna fríðust sýnum. Hún var svo hög að fár konur voru jafn hagar. Hún var allra kvenna grimmust og skaphörðust og drengur góður þar sem vel skyldi vera.


Tilvísanir

Links