Njála, 108: Difference between revisions

From WikiSaga
Jump to navigationJump to search
(Created page with "{{Njála_TOC}} ==Chapter 108== '''TITLE.''' ENSKA ==References== <references /> ==Kafli 108== '''TITILL''' ÍSLENSKA ==Tilvísanir== <references /> ==Links== [[Categ...")
 
No edit summary
Line 14: Line 14:
==Kafli 108==
==Kafli 108==

'''TITILL'''
Nokkuru síðar reið Mörður til Bergþórshvols og fann þá Skarphéðin. Hann sló á mikið fagurmæli við þá og talaði hann dag allan og kvaðst við þá margt vilja eiga. Skarphéðinn tók því öllu vel en kvað hann ekki leitað hafa fyrr.
 
Svo gerðist að hann kom sér í svo mikla vináttu við þá að hvorigum þótti ráð ráðið nema við aðra réðust um. Njáli þótti jafnan illt er hann kom þangað og fór svo jafnan að hann amaðist við.
 
Einhverju sinni var það að Mörður kom til Bergþórshvols.
 
Mörður mælti til þeirra Njálssona: „Veislu hefi eg þar stofnað og ætla eg að drekka erfi eftir föður minn. En til þeirrar veislu vil eg bjóða yður Njálssonum og Kára og því heita að þér skuluð eigi gjafalaust í braut fara.“
 
Þeir hétu að fara. Fer hann nú heim og býr veisluna. Hann bauð þangað mörgum bóndum og var veisla sú fjölmenn. Koma þangað Njálssynir og Kári. Mörður gaf Skarphéðni gullsylgju mikla en Kára silfurbelti en Grími og Helga góðar gjafir.
 
Þeir koma heim og hrósa gjöfum þessum og sýna Njáli.
 
Hann segir að þeir mundu fullu keypt hafa „og hyggið að því að þér launið eigi því sem hann mundi vilja.“

ÍSLENSKA

Revision as of 08:16, 25 June 2014

Chapter 108

TITLE.

ENSKA

References

Kafli 108

Tilvísanir

Links