Njála, 127: Difference between revisions

From WikiSaga
Jump to navigationJump to search
(Created page with "{{Njála_TOC}} ==Chapter 127== '''TITLE.''' ENSKA ==References== <references /> ==Kafli 127== '''TITILL''' ÍSLENSKA ==Tilvísanir== <references /> ==Links== [[Categ...")
 
No edit summary
Line 14: Line 14:
==Kafli 127==
==Kafli 127==

'''TITILL'''
Nú er þar til máls að taka að Bergþórshvoli að þeir Grímur og Helgi fóru til Hóla, þar voru þeim fóstruð börn, og sögðu móður sinni að þeir mundu ekki heim um kveldið.
 
Þeir voru í Hólum allan daginn. Þar komu fátækar konur og kváðust komnar að langt. Þeir bræður spurðu þær tíðinda. Þær kváðust engi tíðindi segja „en segja kunnum vér nýlundu nokkura.“
 
Þeir spurðu hver sú væri og báðu þær eigi leyna. Þær sögðu svo vera skyldu.
 
„Vér komum að ofan úr Fljótshlíð og sáum vér Sigfússonu alla ríða með alvæpni. Þeir stefndu upp á Þríhyrningshálsa og voru fimmtán í flokki. Vér sáum og Grana Gunnarsson og Gunnar Lambason og voru þeir fimm saman. Þeir stefndu hina sömu leið. Og kalla má að nú sé allt á för og flaugum um héraðið.“
 
Helgi Njálsson mælti: „Þá mun Flosi kominn austan og munu þeir allir koma til móts við hann og skulum við, Grímur, vera þar Skarphéðinn er.“
 
Grímur kvað svo vera skyldu og fóru þeir heim.
 
Þenna aftan hinn sama mælti Bergþóra til hjóna sinna: „Nú skuluð þér kjósa yður mat í kveld að hver hafi það er mest fýsir til því að þenna aftan mun eg bera síðast mat fyrir hjón mín.“
 
„Það skyldi eigi vera,“ sögðu þau.
 
„Það mun þó vera,“ segir hún, „og má eg miklu fleira af segja ef eg vil og mun það til merkja að þeir Grímur og Helgi munu heim koma áður menn eru mettir í kveld. Og ef þetta gengur eftir þá mun svo fara fleira sem eg segi.“
 
Síðan bar hún mat á borð.
 
Njáll mælti: „Undarlega sýnist mér nú. Eg þykist sjá um alla stofuna og þykir mér sem undan sé gaflveggurinn en blóð eitt allt borðið og maturinn.“
 
Þá fannst öllum mikið um þetta nema Skarphéðni. Hann bað menn ekki syrgja né láta öðrum herfilegum látum svo að menn mættu orð á því gera „og mun oss vandara gert en öðrum að vér berum oss vel og er það að vonum.“
 
Þeir Grímur og Helgi komu heim áður borð voru ofan tekin og brá mönnum mjög við það. Njáll spurði hví þeir færu svo hverft en þeir sögðu slíkt sem þeir höfðu frétt. Njáll bað engan mann til svefns fara og vera vara um sig.

ÍSLENSKA

Revision as of 08:22, 25 June 2014

Chapter 127

TITLE.

ENSKA

References

Kafli 127

Tilvísanir

Links