Njála, 141

From WikiSaga
Revision as of 08:47, 25 June 2014 by Olga (talk | contribs)
Jump to navigationJump to search


Chapter 141

TITLE.

ENSKA

References


Kafli 141

Það var einn dag að menn gengu til Lögbergs og var svo skipað höfðingjum að Ásgrímur Elliða-Grímsson og Gissur hvíti, Guðmundur ríki, Snorri goði voru uppi hjá Lögbergi en Austfirðingar stóðu niðri fyrir. Mörður Valgarðsson stóð hjá Gissuri mági sínum. Hann var allra málsnjallastur. Gissur mælti að hann skyldi lýsa vígsökinni, bað hann mæla svo hátt að vel mætti heyra.

Mörður nefndi sér votta: „Nefni eg í það vætti að eg lýsi lögmætu frumhlaupi á hönd Flosa Þórðarsyni er hann hljóp til Helga Njálssonar og veitti honum holundarsár eða mergundar, það er að ben gerðist en hann fékk bana af. Tel eg hann eiga að verða um sök þá mann sekjan, skógarmann óalanda, óferjanda, óráðanda öllum bjargráðum. Tel eg sekt fé hans allt, hálft mér en hálft fjórðungsmönnum þeim sem sektarfé eiga að taka að lögum eftir hann. Lýsi eg vígsök þessi til fjórðungsdóms þess er sökin á í að koma að lögum. Lýsi eg löglýsing. Lýsi eg í heyranda hljóði að Lögbergi. Lýsi eg nú til sóknar í sumar og til sektar fullrar á hönd Flosa Þórðarsyni. Lýsi eg handseldri sök Þorgeirs Þórissonar.“

Að Lögbergi var ger mikill rómur að honum mæltist vel og skörulega.

Mörður tók til orðs í annað sinn. „Nefni eg yður í það vætti,“ segir hann, „að eg lýsi sök á hönd Flosa Þórðarsyni. Lýsi eg er hann særði Helga Njálsson holundarsári eða mergundar, því sári er að ben gerðist, en Helgi fékk bana af á því vættfangi er Flosi Þórðarson hljóp til Helga Njálssonar lögmætu frumhlaupi áður. Tel eg þig, Flosi, eiga að verða um sök þá mann sekjan, skógarmann óalanda, óferjanda, óráðanda öllum bjargráðum. Tel eg sekt fé þitt allt, hálft mér en hálft fjórðungsmönnum þeim sem sektarfé eiga að taka eftir þig að lögum. Lýsi sök þessi til fjórðungsdóms þess sem sökin á í að koma að lögum. Lýsi eg löglýsing. Lýsi eg í heyranda hljóði að Lögbergi. Lýsi eg nú til sóknar í sumar og fullrar sektar á hönd Flosa Þórðarsyni. Lýsi eg handseldri sök Þorgeirs Þórissonar.“

Síðan settist Mörður niður. Flosi gaf gott hljóð til og mælti ekki orð á meðan.

Þorgeir skorargeir stóð upp og nefndi sér votta: „Nefni eg í það vætti að eg lýsi sök á hendur Glúmi Hildissyni um það er hann tók eld og kveikti og bar í húsin að Bergþórshvoli þá er þeir brenndu inni Njál Þorgeirsson og Bergþóru Skarphéðinsdóttur og þá menn alla er þar brunnu inni. Tel eg hann eiga að verða um sök þá mann sekjan, skógarmann óalanda, óferjanda, óráðanda öllum bjargráðum. Tel eg sekt fé hans allt, hálft mér en hálft fjórðungsmönnum þeim sem sektarfé eiga að taka eftir hann að lögum. Lýsi sök þessi til fjórðungsdóms þess er sökin á í að koma að lögum. Lýsi eg í heyranda hljóði að Lögbergi. Lýsi eg nú til sóknar í sumar og til fullrar sektar á hönd Glúmi Hildissyni.“

Kári Sölmundarson sótti Kol Þorsteinsson og Gunnar Lambason og Grana Gunnarsson og var það mál manna að honum mæltist furðulega vel. Þorleifur krákur sótti Sigfússonu alla en Þorgrímur hinn mikli bróðir hans sótti Móðólf Ketilsson og Lamba Sigurðarson, Hróar Hámundarson, bróður Leiðólfs hins sterka. Ásgrímur Elliða-Grímsson sótti Leiðólf og Þorstein Geirleifsson, Árna Kolsson og Grím hinn rauða og mæltist þeim öllum vel. Síðan lýstu aðrir sökum sínum og var það lengi dags að því gekk. Fóru menn þá heim til búða sinna.

Eyjólfur Bölverksson gekk til búðar með Flosa. Þeir gengu austur um búðina.

Flosi mælti til Eyjólfs: „Hvort sérð þú nokkura vörn í málum þessum?“

„Enga,“ segir Eyjólfur.

„Hvað er nú til ráðs?“ segir Flosi.

„Til mun eg leggja eitthvert ráð með þér en ey. Nú skaltu selja af höndum goðorð þitt og í hendur Þorgilsi bróður þínum en þú segist í þing með Áskatli goða Þorketilssyni norðan úr Reykjardal. En ef þeir vita þetta eigi þá má vera að þeim verði að þessu mein því að þeir munu sækja í Austfirðingadóm en þeir ættu í Norðlendingadóm að sækja og mun þeim þetta yfir sjást. Og er fimmtardómsmál á þeim ef þeir sækja og mun í annan dóm en vera á. Skulum vér þá sök upp taka og þó að síðasta kosti.“

Flosi mælti: „Vera má að oss sé launaður hringurinn.“

„Eigi veit eg það,“ segir Eyjólfur, „en veita skal eg yður til laga svo að það sé mál manna að eigi sé framar von. Skal nú senda eftir Áskatli en Þorgils skal nú þegar koma til þín og einn maður með honum.“

Litlu síðar kom Þorgils. Tók hann þá við manna forræði. Þá kom þar og Áskell. Sagðist Flosi þá í þing með honum. Var þetta nú ekki á fleiri manna vitorði en þeirra.


Tilvísanir

Links