Njála, 157

From WikiSaga
Revision as of 08:08, 25 June 2014 by Olga (talk | contribs) (Created page with "{{Njála_TOC}} ==Chapter 157== '''TITLE.''' ENSKA ==References== <references /> ==Kafli 157== Flosi bauð fimmtán menn af liði sínu til ferðarinnar en jarl þekktist ...")
(diff) ← Older revision | Latest revision (diff) | Newer revision → (diff)
Jump to navigationJump to search


Chapter 157

TITLE.

ENSKA

References


Kafli 157

Flosi bauð fimmtán menn af liði sínu til ferðarinnar en jarl þekktist það. En Flosi fór með Gilla jarli í Suðureyjar. Þorsteinn Síðu-Hallsson fór með Sigurði jarli, Hrafn hinn rauði, Erlingur af Straumey. Jarl vildi eigi að Hárekur færi en jarl lést mundu segja honum fyrstum tíðindin.

Jarlinn kom með allan her sinn að pálmadegi í Dyflin. Þá var og kominn Bróðir með allan her sinn. Bróðir reyndi til með forneskju hversu ganga mundi orustan. En svo gekk fréttin ef á föstudegi væri barist að Brían konungur mundi falla og hafa sigur en ef fyrr væri barist mundu þeir allir falla er í móti honum væru. Þá sagði Bróðir að eigi skyldi fyrr berjast en föstudaginn.

Þá reið maður að þeim Kormlöðu á apalgrám hesti og hafði í hendi pálstaf. Hann talaði lengi við þau.

Brían konungur kom með allan her sinn til borgarinnar. Föstudaginn fór út herinn af borginni og var fylkt liðinu hvorutveggja. Bróðir var í annan fylkingararminn en Sigtryggur konungur í annan. Sigurður jarl var í miðju liðinu.

Nú er að segja frá Bríani konungi að hann vildi eigi berjast föstudaginn og var skotið um hann skjaldborg og fylkt þar liðinu fyrir framan. Úlfur hræða var í þann fylkingararminn sem Bróðir var til móts en í annan fylkingararm var Óspakur og synir konungs en í miðri fylkingunni var Kerþjálfaður og voru fyrir honum borin merkin.

Fallast nú að fylkingarnar. Var þar orusta allhörð. Gekk Bróðir í gegnum lið þeirra og felldi þá alla er fremstir stóðu en hann bitu ekki járn. Úlfur hræða sneri þá í móti honum og lagði til hans þrisvar sinnum svo fast að Bróðir féll fyrir í hvert sinn og var við sjálft að hann mundi eigi á fætur komast. En þegar hann fékk upp staðið þá flýði hann og þegar í skóginn undan.

Sigurður jarl átti harðan bardaga við Kerþjálfað. Kerþjálfaður gekk svo fast fram að hann felldi þá alla er fremstir voru. Rauf hann þá fylkinguna Sigurðar jarls allt að merkjum og drap merkismanninn. Fékk hann þá til annan mann að bera merkið. Varð þá enn orusta hörð. Kerþjálfaður hjó þenna þegar banahögg og hvern að öðrum þá er í nánd voru. Sigurður jarl kvaddi þá til Þorstein Síðu-Hallsson að bera merkið. Þorsteinn ætlaði upp að taka merkið.

Þá mælti Ámundi hvíti: „Berðu eigi merkið því að þeir eru allir drepnir er það bera.“

„Hrafn hinn rauði,“ sagði jarl, „berðu merkið.“

Hrafn svaraði: „Berðu sjálfur fjanda þinn.“

Jarl mælti: „Það mun vera maklegast að fari saman karl og kýll.“

Tók hann þá merkið af stönginni og kom í millum klæða sinna. Litlu síðar var veginn Ámundi hvíti. Þá var jarl og skotinn spjóti í gegnum.

Óspakur hafði gengið um allan fylkingararminn. Hann var orðinn sár mjög en látið sonu sína báða áður. Sigtryggur konungur flýði fyrir honum. Brast þá flótti í öllu liðinu.

Þorsteinn Síðu-Hallsson nam staðar þá er aðrir flýðu og batt skóþveng sinn. Þá spurði Kerþjálfaður hví hann rynni eigi.

„Því,“ sagði Þorsteinn, „að eg tek eigi heim í kveld þar sem eg á heima út á Íslandi.“

Kerþjálfaður gaf honum grið.

Hrafn hinn rauði var eltur út á á nokkura. Hann þóttist þar sjá helvítis kvalar í niðri og þótti honum djöflar vilja draga sig til.

Hrafn mælti þá: „Runnið hefir hundur þinn, Pétur postuli, til Róms tvisvar og mundi renna hið þriðja sinn ef þú leyfðir.“

Þá létu djöflar hann lausan og komst Hrafn yfir ána.

Bróðir sá nú að liðið Bríans konungs rak flóttann og var fátt manna hjá skjaldborginni. Hljóp hann þá úr skóginum og rauf alla skjaldborgina og hjó til konungsins. Sveinninn Taktur brá upp við hendinni og tók hana af honum og höfuðið af konunginum en blóðið konungsins kom á stúf sveininum og greri þegar fyrir stúfinn.

Bróðir kallaði þá hátt: „Kunni það maður manni að segja að Bróðir felldi Brían.“

Þá var runnið eftir þeim er flóttann ráku og sagt þeim fallið Bríans konungs. Sneru þeir þá aftur þegar Úlfur hræða og Kerþjálfaður. Slógu þeir þá hring um þá Bróður og felldu að þeim viðu. Var þá Bróðir höndum tekinn. Úlfur hræða reist á honum kviðinn og leiddi hann um eik og rakti svo úr honum þarmana og dó hann eigi fyrr en allir voru úr honum raktir. Menn Bróður voru allir drepnir. Síðan tóku þeir lík Bríans konungs og bjuggu um. Höfuð konungsins var gróið við bolinn. Fimmtán menn af brennumönnum féllu í Bríansorustu. Þar féll og Halldór son Guðmundar hins ríka og Erlingur af Straumey.

Föstudaginn langa varð sá atburður á Katanesi að maður sá er Dörruður hét gekk út. Hann sá að menn riðu tólf saman til dyngju einnar og hurfu þar allir. Hann gekk til dyngjunnar. Hann sá í glugg er á var og sá að þar voru konur inni og höfðu færðan upp vef. Mannahöfuð voru fyrir kljána en þarmar úr mönnum fyrir viftu og garn, sverð var fyrir skeið en ör fyrir hræl.

Þær kváðu vísur þessar:


1.Vítt er orpinn

fyrir valfalli

rifs reiði,

rignir blóði.

Nú er fyrir geirum

grár upp kominn

vefur verþjóðar

er þær vinur fylla

rauðum vefti

Randversk blá.


2.Sjá er orpinn vefur

ýta þörmum

og harðkljáður

höfðum manna.

Eru dreyrrekin

dörr að sköftum,

járnvarður ylli

en örum hrælar.

Skulum slá sverðum

sigurvef þenna.


3.Gengur Hildur vefa

og Hjörþrimul,

Sanngríður, Svipul

sverðum rekna.

Skaft mun gnesta,

skjöldur mun bresta,

mun hjálmgagar

í hlíf koma.


4.Vindum, vindum

vef darraðar

og siklingi

síðan fylgjum.

Þar sjá bragnar

blóðgar randir

Gunnur og Göndul

þær er grami fylgdu.


5.Vindum, vindum

vef darraðar,

sá er ungur konungur

átti fyrri.

Fram skulum ganga

og í fólk vaða

þar er vinir vorir

vopnum skipta.


6.Vindum, vindum

vef darraðar

þar er vé vaða

vígra manna.

Látum eigi

líf hér sparast,

eiga valkyrjur

vals um kosti.

7.Þeir munu lýðir

löndum ráða

er útskaga

áður um byggðu.

Kveð eg ríkum gram

ráðinn dauða.

Nú er fyrir oddum

jarlmaður hniginn.


8.Og munu Írar

angur um bíða,

það er aldrei mun

ýtum fyrnast.

Nú er vefur ofinn,

en völlur roðinn,

munu um lönd fara

læspjöll gota.


9.Nú er ógurlegt

um að litast

er dreyrug ský

dregur með himni.

Mun loft litað

lýða blóði

er spár vorar

springa kunnu.


10. Vel kváðum vér

um konung ungan

sigurljóða fjöld.

Syngjum heilar,

en hinn nemi,

er heyrir á

geirhljóða fjöld

og gumum skemmti.


11. Ríðum hestum,

hart út berum

brugðnum sverðum

á brott héðan.


Rifu þær þá ofan vefinn og í sundur og hafði hver það er hélt á. Gekk Dörruður nú í braut frá glugginum og heim en þær stigu á hesta sína og riðu sex í suður en aðrar sex í norður.

Slíkan atburð bar fyrir Brand í Færeyjum Gneistason.

Á Íslandi að Svínafelli kom blóð ofan á messuhökul prests föstudaginn langa svo að hann varð úr að fara.

Að Þvottá sýndist presti á föstudaginn langa sjávardjúp hjá altarinu og sá þar í ógnir margar og var það lengi að hann mátti eigi syngja tíðirnar.

Sá atburður varð í Orkneyjum að Hárekur þóttist sjá Sigurð jarl og nokkura menn með honum. Tók Hárekur þá hest sinn og reið til móts við jarl. Sáu menn það að þeir fundust og riðu undir leiti nokkurt en þeir sáust aldrei síðan og engi urmul fundust af Háreki.

Gilla jarl í Suðureyjum dreymdi það að maður kæmi að honum og nefndist Herfinnur og kvaðst kominn af Írlandi. Jarl þóttist spyrja þaðan tíðinda.

Hann kvað vísu þessa:


48. Var eg þar er bragnar börðust;

brandur gall á Írlandi.

Margur, þar er mættust törgur,

málmur gnast í dyn hjálma.

Svipun þeirra frá eg snarpa;

Sigurður féll í dyn vigra,

áður téði ben blæða.

Brían féll og hélt velli.


Þeir Flosi og jarl töluðu margt um draum þenna. Viku síðar kom þar Hrafn hinn rauði og sagði þeim tíðindin öll úr Bríansorustu, fall konungs og Sigurðar jarls og Bróður og allra víkinganna.

Flosi mælti: „Hvað segir þú mér til manna minna?“

„Þar féllu þeir allir,“ segir Hrafn, „en Þorsteinn mágur þinn þá grið af Kerþjálfaði og er nú með honum.“

Flosi segir jarli að hann mundi í braut fara, „eigum vér suðurgöngu af höndum að inna.“ Jarl bað hann fara sem hann vildi og fékk honum skip og það sem hann þurfti og í silfur mikið. Sigldu þeir þá til Bretlands og dvöldust þar um stund.


Tilvísanir

Links